Þórarinn flytur á Nautabú
Reiðkennarinn og atvinnuknapinn Þórarinn Eymundsson mun halda gleðileg jól með fjölskyldu sinni á Sauðárkróki. Hann og kona hans, Sigríður Gunnarsdóttir, festu nýlega kaup á jörðinni Nautabú í Hjaltadal í Skagafirði og munu þau flytja þangað í sumar. Þórarinn hefur rekið tamningastöð í hesthúsahverfinu á Sauðárkróki undanfarin ár ásamt því að sinna reiðkennslu víðsvegar.
Þórarinn er viðmælandi í Jólamola dagsins
Jólamolar Eiðfaxa munu birtast reglulega fram að jólum en þar fáum við að kynnast hestamönnum í öðru ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólaskap.
Hvað ert þú að brasa þessa dagana ?
Sitt lítið af hverju en ég hef verið að vinna með ungu hrossin og er aðeins að byrja á þeim eldri. Hef einnig verið að kenna aðeins, t.d. á Hólum.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Jólaskapið magnast svona upp smá saman út desember. Við vorum að sækja jólatré upp í Hólaskóg en það er eitthvað sem kemur mér í jólaskap.
Hvort myndirðu skilgreina þig sem the Elf eða the Grinch?
Ég er frekar the Elf. Mér þykir mjög vænt um jólin og hef gaman af þeim hefðum sem tegnjast þeim, fá aðeins að slaka á og njóta og hitta ættingja og vini.
Hver er þín uppáhalds jólaminning?
Ætli það sé ekki þessi týpíska þegar maður var smá strákur að setja upp jólatréið og gægjast aðeins í pakkanna.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
Þegar ég fékk sleða en ég man ekki hvað ég var gamall. Ég átti snjóþotu fyrir en þegar ég fékk sleðan það var mjög gaman. Þá var hægt að komast almennilega áfram.
Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
Að fara í kirkju á aðfangadag.
Hvert er þitt uppáhalds jólalag?
Ó Helga Nótt (O Helga Natt) með Jussi Björling – það er gæsahúð.
Hvað borðar þú á aðfangadag?
Það er lambahamborgarhryggur með alls konar gúmmelaði. Það er alltaf hefð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH