Þórarinn sigrar einstaklingskeppnina
Lið Baldvins og Þorvaldar og Þórarinn Ragnarsson á Þyt frá Efsta Dal II sigurvegarar Uppsveitadeildar Hótels Geysis 2014.
Reiðhöllin á Flúðum var sneisafull af áhorfendum þegar lokakvöld Uppsveitadeildar Hótels Geysis fór fram með keppni í tölti og flugskeiði. Fyrir keppnina var staða efstu knapa nokkuð jöfn í einstaklingskeppninni en Þórarinn Ragnarsson fyrir Baldvin og Þorvald og Sólon Morthens fyrir Toyota Selfossi voru jafnir með 17 stig og Guðmann Unnsteinsson í liði Kílhrauns með 16 stig.
Fyrsti knapi í braut í forkeppninni var Þórarinn Ragnarsson með Þyt frá Efsta Dal II. Þeir fengu strax hæstu einkunn í forkeppninni og héldu þeir sæti sínu alla forkeppnina með einkunina 7.27 . Í öðru sæti eftir forkeppni var Guðjón Sigurðsson með einkunnina 6.87 og í þriðja sæti var Líney Kristinsdóttir (North Rock) á Rúbín frá Fellskoti með 6.80. Helgi Eyjólfsson (Baldvin og Þorvaldur) á Brák frá Egilsstöðum 1 var í fjórða sæti forkeppninnar með 6.77. Þessi knapar voru því öruggir í A-úrslit en keppni í B-úrslitum varð mjög jöfn þótt nokkrar breytingar yrðu á röð efstu knapa. Bjarni Bjarnason (Bros liðið) á Hnokka frá Þóroddsstöðum sigraði B-úrslitin og og vann sig úr sjöunda sæti í forkeppninni í fimmta sætið.
Þegar kom að A-úrslitum varð ljóst að Þytur frá Efsta Dal II og Þórarinn Ragnarsson voru par kvöldsins en Þytur sýndi sínar bestu hliðar og voru þeir öruggir í fyrsta sæti með einkunnina 7.78 og hækkuðu töluvert frá forkeppninni en Guðjón Sigurðsson á Þyrnirós frá Reykjavík varð í öðru sæti með 6.89. Bjarni Bjarnason endaði í þriðja sæti á Hnokka frá Þóroddsstöðum með 6.78 og Líney Kristinsdóttir á Rúbín frá Fellskoti fengu fjórða sæti með 6.667 og Helgi Eyjólfssson á Brák frá Egilsstöðum 1 fékk fimmta sætið með 6.50.
Góð tilþrif sáust í töltkeppninni og var sérstaklega tekið eftir því að í B-úrslitum voru margir af yngri og nýrri knöpunum sem hafa sýnt hæfni sína í vetur og eru engir eftirbátar eldri og reyndar knapa. Þessi knapar voru Sigurbjörg Bára Björnsdóttir á Blossa frá Vorsabæ II, Finnur Jóhannesson á Kerti frá Torfastöðum, Berglind Ágústsdóttir á Reisn frá Blesastöðum 1A og Dóróthea Ármanna á Bergþóru frá Friðheimum.
Keppt var í flugskeiði og renndu knapar þrjá spretti og sigraði Finnur Jóhannesson (North Rock) á Tinnu frá Glæsibæ á 2.99 sek. Í öðru sæti var Þórarinn Ragnarsson (Baldvin og Þorvaldur) á Funa Frá Hofi á 3.05 en Helgi Eyjólfsson á Viljari frá Skjólbrekku rann skeiðið á 3.06 og Birgir Leó Ólafsson var skammt á eftir á Skemli frá Dalvík á 3.13 og í fimmta sæti varð Hermann Þór Karlsson á Gítar frá Húsatóftum.
Í samanlögðum árangri einstaklinga sigraði Þórarinn Ragnarsson með yfirburðum en hann fékk 36 stig en í öðru sæti varð Sólon Morthens með 21 stig og Bjarni Bjarnason með 21 stig í þriðja sæti. Í fjórða sæti varð Helgi Eyjólfsson með 20 stig og Guðmann Unnsteinsson í fimmta sæti með 16 stig.
Lið Baldvins og Þorvalds sigruðru liðakeppnina með 61 stig en í öðru sæti varð Bros liðið með 51 stig og í þriðja sæti Toyota Selfossi með 41 stig.
SKEIÐ – ÚRSLIT
1 Finnur Jóhannesson – Tinna Svört frá Glæsibæ 2,99
2 Þórarinn Ragnarsson – Funi frá Hofi 3,05
3 Helgi Eyjólfsson – Viljar frá Skjólbrekku 3,06
4 Birgir Leó Ólafsson – Skemill frá Dalvík 3,13
5 Hermann Þór Karlsson – Gítar frá Húsatóftum 3,2
6 Bjarni Bjarnason – Blika frá Þóroddsstöðum 3,25
7 Sólon Morthens – Glaumdís frá Dalsholti 3,28
8 Halldór Þorbjörnsson – Ólga frá Hurðarbaki 3,35
9 Jón Óskar Jóhannesson – Svipall frá Torfastöðum 3,39
10 Gunnlaugur Bjarnason – Stormur frá Reykholti 3,42
11 Guðmann Unnsteinsson – Askja frá Kílhrauni 3,47
12 Ingvar Hjálmarsson – Dama frá Fjalli 3,49
13 Dórothea Ármann – Hruni frá Friðheimum 3,75
14 Jón William – Fluga frá Hvammi 3,89
15 Malin Elisabeth Ramm – Viska frá Presthúsum 4,13
16 Líney S. Kristinsdóttir – Hugljúf frá Lækjabotnum 4,14
17 Ragnhildur Stefanía Eyþórsdóttir – Hólmfríður frá Blesastöðum 1A 4,46
18 Guðjón Hrafn Sigurðarson – Sóley frá Syðri-Hofdölum 4,9
19 Björgvin Ólafsson – Birta frá Þverá 10 20 Bjarni Birgisson – Garún frá Blesastöðum 2A 10
21 Ragnheiður Hallgrímsdóttir – Blíða frá Sólheimum 10
Tölt – A úrslit
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Þórarinn Ragnarsson / Þytur frá Efsta-Dal II 7,78
2 Guðjón Sigurðsson / Þyrnirós frá Reykjavík 6,89
3 Bjarni Bjarnason / Hnokki frá Þóroddsstöðum 6,78
4 Líney Kristinsdóttir / Rúbín frá Fellskoti 6,67
5 Helgi Eyjólfsson / Brák frá Egilsstöðum 1 6,50
Tölt – B úrslit
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Bjarni Bjarnason / Hnokki frá Þóroddsstöðum 6,89
2 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir / Blossi frá Vorsabæ II 6,72
3 Finnur Jóhannesson / Körtur frá Torfastöðum 6,61
4 Berglind Ágústsdóttir / Reisn frá Blesastöðum 1A 6,39
5 Dóróthea Ármann / Bergþóra frá Friðheimum 6,06
Liðakeppnin:
BALDVIN OG ÞORVALDUR 61
BROS LIÐIÐ 51
TOYOTA SELFOSSI 41
TOP REITER 28
KÍLHRAUN 16
NORTH ROCK 16
LIÐ BJARNA BIRGIS 7
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH