Þórður skilaði gulli til Íslands á Gormi
Efstu þrír knapar í A-flokki. Ljósmynd: Anja Mogensen
A-úrslit í A-flokki gæðinga fóru fram nú í morgun þar sem Gormur frá Villanora stóð efstur alhliða gæðinga sýndur af Þórði Þorgeirssyni.
Þeir voru efstir að lokinni forkeppni og héldu þeirri forystu í gegnum öll úrslitin, margir aðrir knapar náðu að sýna hesta sína vel og voru úrslitin spennandi og skemmtileg.
Í öðru sæti varð Völsungur frá Skeiðvöllum sýndur af Susanne Larsen Murphy en þau kepptu fyrir hönd Danmerkur og í þriðja sætinu varð Ópal fra Røkstua sýndur af Christinu Lund en þau kepptu fyrir hönd Noregs.

Þórður og Gomur í góðum gír í A-flokki. Ljósmynd: Anja Mogensen
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Allir á bak hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar