Þorgils Kári í 1.sæti
Eiðfaxi fjallaði um úrslit í gæðingaskeiði sem fram fór í gærkvöldi hér á Reykjavíkur meistaramóti. Þar var ranglega kynnt að Benjamín Sandur Ingólfsson hefði sigrað keppni í gæðingaskeiði ungmenna. Þeir Benjamín og Þorgils Kári voru jafnir á einkunnum í 1-2 sæti.
Það hefur verið túlkun keppenda og áhorfenda að þegar að tveir knapar eru jafnir í gæðingaskeiði að þá sigri sá sem betri tíma nær á sprettinum. Hið rétta er að sá keppandi sem hærri einkunnir hlýtur frá dómurum sigrar ef tveir standa jafnir.
Þorgils Kári Sigurðsson sigraði þ.a.l. keppinauta sína í gæðingaskeiði ungmenna á Væntingu frá Sturlureykjum 2, en Benjamín Sandur er Reykjavíkurmeistari þar sem hann keppir fyrir Fák en Þorgils fyrir hestamannafélagið Sleipni
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV