Þorsteinn hlaut FT-fjöðrina
Félag tamningamanna kom á fót viðurkenningu fyrir léttleikandi reiðmennsku og einstaka útgeislun í ársbyrjun í fyrra. Viðurkenningin er nefnd FT-fjöðrin og var val á fjaðurhöfum látin í hendur dómara.
„Sú breyting er í ár að fagmenn á vegum félagsins fylgjast með mótum og velja parið sem hefur þetta einstaka samspil sem leitað er eftir. Fallegt samspil knapa og hests, jákvæð orka undir stjórn og umfram allt léttleiki, burður og útgeislun,“ segir í tilkynningu frá formanni FT, Súsönnu Ólafsdóttur.
Fyrsta FT-fjöður ársins 2015 var veitt Þorsteini Björnssyni fyrir sýningu sína í gæðingafimi í Meistaradeild Norðurlands, KS-deildinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH