Þrettán hross felld en öðrum skilað aftur til baka
Mikið hefur verið fjallað um vanrækslu ákveðins aðila á hrossum á Vesturlandi. Málið fékk mikla umfjöllun í lok sumars og verið mikil óánægja með aðgerðarleysi MAST.
Matvælastofnun sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem fram kemur að tilkynnt hafi verið til hrossaeiganda á Vesturlandi um vörslusviptingu á hrossunum á mánudaginn og hafi hún verið framkvæmd í gær, þriðjudag.
Í tilkynningunni kemur fram að hrossin hafi verið skoðuð ítarlega og mat MAST ástand 13 þeirra það alvarlegt að tólf þeirra voru send samdægurs í sláturhús og eitt aflífað á staðnum.
„Önnur hross reyndust vera í ásættanlegum holdum og var skilað til umráðamanns. Tíu þeirra eru þó enn metin í viðkvæmu ástandi (holdastig <3) og skulu njóta sérstakrar umhirðu. Málið er því enn til meðferðar hjá stofnuninni þar sem kröfum um úrbætur verður fylgt eftir,“ segir í tilkynningu MAST.
Í samtali við RÚV segir Sigríður Björnsdóttir sérgreinadýralæknir hrossa hjá MAST að sex af átján tryppum hefðu náð að bæta á sig en hrossin höfðu verið sett á beit eftir kröfu frá Matvælastofnun. Þar kemur einnig fram að hrossin hefðu ekki verið felld á vordegi en með veturinn fram undan var ákveðið að fella þau. Holdastig þeirra algjörlega óviðunandi þegar komið er svona langt fram á haustið og fimm þeirra gengin úr þeim vetrarhárum sem þau voru komin í.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH