Þriðja Landsbankamót Sörla
Þriðja Landsbankamótið (þrígangur) og það síðasta í vetrarmótaröð Sörla verður haldið 13.-14. apríl næstkomandi á Sörlastöðum að er fram kemur í fréttatilkynningu. Mjög vinsælt og skemmtilegt mót og gaman að keppa og horfa á. Mótið hefst á föstudaginn þann 13. og lýkur laugardaginn 14. apríl.
Skráning
Skráning á III. Landsbankamótið (þrígangur) er í dómpalli
þriðjudaginn 10. apríl, milli klukkan 17:00 og 19:00.
Skráningargjald
2500 krónur ( 1500 fyrir annan hest og 1000 krónur fyrir þriðja )
1000 kr. fyrir polla og 1.000 kr. fyrir skeið.
Nokkrir punktar um mótið:
- Fylgist með dagskrá á mótsdegi, uppfærð dagsskrá verður hengd upp við dómpall.
- Sýna skal a.m.k. þrjár gangtegundir í fjórum ferðum. Dómskali Gæðingakeppni gildir.
- Gefin er ein einkunn fyrir tölt. ( Ef bæði sýnt hægt og greitt gildir hærri einkunn)
- Keilur afmarka keppnisbraut, þar sem hestur er í dómi.
- Knapar skulu fylgjast með dagsskrá og fyrirmælum þular.
- Athugið að dagskrá getur riðlast v. forfallahesta.
- Keppandi skal vera tilbúinn á brautarenda þegar knapi á undan er í braut.
- Keppendur mega koma með fleiri en einn hest til keppni
- Stigin reiknast eftir forkeppni
Dagskrá
Föstudagur 13. apríl
- Skeið
- Börn
- Unglingar
- Úrslit – börn
- Úrslit – unglingar
- Laugardagur 14. apríl
- Ungmenni
- Pollar
- Úrslit – Ungmenni
- Eldri flokkar ( forkeppnin er blönduð úr öllum flokkum )
- Úrslit – Heldrimenn
- Úrslit – 3. flokkur
- Úrslit – 2. flokkur
- Úrslit – 1. flokkur
- Úrslit – opinn flokkur
Sörli hefur fengið úthlutað útvarpstíðni fyrir eftirfarandi mót Landsbankamót 3, Íþróttamót og Gæðingakeppi (úrtaka fyrir Landsmót). Tíðnin er fm 91,9
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing