Þriðju Skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar

  • 20. júní 2020
  • Fréttir
Skráning í fullum gangi

Þriðju skeiðleikar ársins fara fram miðvikudagskvöldið 24.júní á Brávöllum á Selfossi. Skeiðleikarnir eru með hefðbundnu sniði en byrjað er á 250 metra skeiði og endað á 100 metra skeiði.

Skráning er nú opin á Sportfeng þar sem velja þarf Skeiðfélagið sem mótshaldara en henni lýkur sunnudaginn 21.júní.

Skeiðfélagið hvetur alla knapa til að taka þátt enda til mikils að vinna – 100.000 króna gjafaúttektt í Baldvin og Þorvaldi fyrir heildarsigurvegara og farandbikarinn Öderinn veittur stigahæsta knapa.

Skeiðleikarnir eru í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Alendis og þá er hægt að tippa á Skeiðleika í gegnum lengjuna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link