Þrígangsmót í Spretti
Hestamannafélagið Sprettur heldur opið þrígangsmót í reiðhöll Spretts laugardaginn 7.mars. Mótið hefst kl. 10 að er fram kemur í tilkynningu en aðalstyrktaraðili mótsins er Coka-Cola, Vífilfell.
„Skráning er hafin og stendur til kl.18 fimmtudagsinn 5. mars, í gegnum http://bit.ly/1K50kHn – www.sportfengur.com.
Boðið verður upp á keppni í fjórum flokkum:
- 17 ára og yngri
- Minna vanir
- Meira vanir
- Opinn flokkur
Sýna á fegurðartölt, brokk og stökk. Ef 20 eða fleiri skrá í einhvern flokk verður boðið upp á B-úrslit. Einnig verður glæsilegasta parið valið úr hópi keppenda. Takið daginn frá. Skráningargjald er kr. 3.500 á hest.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH