Þrjú efstir
Brautskráning frá Háskólanum á Hólum vorið 2016 fór fram við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Miðgarði, föstudaginn 10. júní sl. Dagskráin var með hefðbundnum hætti og hófst með ávarpi rektors skólans, Erlu Bjarkar Örnólfsdóttur.
Sveinn Ragnarsson, deildarstjóri hestafræðideildar, brautskráði alls 13 manns með BS-próf í reiðmennsku og reiðkennslu. Því miður gat hann þó einungis afhent sjö skírteini því um helmingur nemanna var fjarri góðu gamni, upptekinn við kynbótasýningar og annað sem tengist þessum árstíma þegar hestamennskan er annars vegar. Þeir þurfa þó engu að kvíða, skírteini þeirra og annarra þeirra sem ekki gátu tekið við þeim á staðnum, verða send til þeirra í pósti. Og þess má einnig geta að allur BS-hópurinn tók þátt í reiðsýningunni hinn 21. maí.
Hefð er fyrir því að veita sérstaka viðurkenningu fyrir besta heildarárangur í BS-náminu. Að þessu sinni stóðu þrír nemendur hnífjafnir og frekar en að láta reyna á þriðja aukastaf var ákveðið að heiðra þá alla jafnt. Þetta voru þau Óskar Örn Hróbjartsson, Sara Rut Heimisdóttir og Tonhild Skaare Tveiten.
Hlynur Guðmundsson hlaut síðan viðurkenningu FT fyrir besta árangur á lokaprófi (lokaverkefni) í reiðmennsku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum