Þrír fá gullmerki FT
Þrír voru sæmdir gullmerki Félags tamningamanna á 40 ára afmælishátíð félagsins, sem haldin var í Reiðhöllinni í Víðidal á laugardaginn var: Freyja Hilmarsdóttir, Benedikt Líndal og Eyjólfur Ísólfsson. Sigrún Ólafsdóttir, formaður FT, sagði við það tækifæri að óþarfi væri að kynna þetta fólk, svo þekkt væri það af störfum sínum í þágu íslenska hestsins, tamninga og reiðmennsku.
Þess má geta að Benedikt og Eyjólfur hafa gefið út kennsluefni í tamningum og reiðmennsku, bæði bækur og kvikmyndir. Freyja hefur starfað við tamningar óslitið í meira en þrjátíu ár og dæmt fleiri tamninga- og reiðpróf á vegum FT en flestir aðrir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH