Þrír sigrar á sama degi
Hin árlega reiðsýning brautskráningarnema í reiðmennsku og reiðkennslu var haldin hátíðleg síðastliðinn laugardag á Hólum. Sýningin var felld inn í dagskrá Hólamótsins í hestaíþróttum, sem var World Ranking mót á vegum hestaíþróttaráðs UMSS.
Hanna Rún Ingibergsdóttir hlaut bæði Morgunblaðshnakkinn ásamt Ásetu- og reiðmennskuverðlaunum Félags tamningamanna og gerði sér svo lítið fyrir og vann fjórgangskeppni í Meistarflokki á Hólamótinu sama dag. Hanna Rún er ánægð með námið og ber Háskólanum á Hólum góða sögu. „Þetta er virkilega góður skóli og maður lærir svo mikið um hestinn í heild sinni. Maður kemst bar að því hvað maður kann í rauninni lítið.“
Nánar í 5. tbl. Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].




Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH