Þrír stóðhestar náð afkvæmafjölda til heiðursverðlauna
Álfaklettur stóð efstur í elsta flokki stóðhesta á Landssýningu árið 2020, stóð efstur 1.verðlauna stóðhesta fyrir afkvæmi á Landsmóti 2022 og telst líklegur til að verða Sleipnisbikarhafi á komandi Landsmóti.
Í dag fara fram kynbótasýningar á þremur stöðum á landinu þ.e. á Rangárbökkum, Selfossi og Hólum auk þess fer fram yfirlit í Spretti.
Nú þegar hafa þrír stóðhestar náð tilskildum fjölda afkvæma til heiðursverðlauna á komandi Landsmóti. Það eru þeir Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum, Hringur frá Gunnarsstöðum og Skaginn frá Skipaskaga.
Til að stóðhestur hljóti heiðursverðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og 50 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeiðs nú líka veitt afkvæmaverðlaun. Áfram verður þó miðað við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.
Nýtt kynbótamat hrossa verður reiknað í næstu viku að loknum kynbótadómum á Íslandi og þá kemur endanlega í ljós hver þessara farsælu kynbótahesta hlýtur efsta sætið og hinn sögufræga Sleipnisbikar sem veittur er af Bændasamtökum Íslands.
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Núverandi kynbótamat |
| Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum | 50 | 136 |
| Skaginn frá Skipaskaga | 53 | 126 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 50 | 123 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH