Þrjár efnilegar hryssur

  • 11. júní 2012
  • Fréttir
Þrjár efnilegar hryssur

„Við stefnum á að sýna tvær til þrjár hryssur í kynbótadómi. Svo verður maður bara að bíða og sjá hvað setur,“ segir Vignir Sigurðsson á Litlu-Brekku í Eyjafirði. „Ein hryssan, sem er á fjórða vetur, er undan Stála Gustssyni frá Ytri-Bægisá og fyrstu verðlauna Baldursdóttur. Þetta er efnistryppi, jörp, alhliða, jákvæð og skemmtileg. Hún virðist vera jafnvíg á gangi og geðslagið er gott. Það stendur vissulega að henni mikið ganghestakyn báðum megin. Síðan eru tvær sammæðra hryssur, önnur á fjórða og hin á sjötta vetur. Sú yngri er undan Álfi en hin undan Sámi frá Litlu-Brekku. Sú síðarnefnda hefur verið sýnd og fór í 8.11 í fyrra. Vonir standa til að hún geri enn betur núna. Við gátum ekki byrjað á Álfsdótturinni fyrr en um áramót, því hún meiddist aðeins í haust, en hún hefur komið vel til og reynist vera opið og skemmtilegt tryppi, næm og létt. Vegna þess hve seint var farið af stað með hana á ég alveg eins von á að hún verði bara heima, en það verða engar ákvarðanir teknar fyrr en við lok skráningarfrests. Þessar hryssur eru allar hjá Bjarna Jónassyni á Narfastöðum í Skagafirði. Þannig að ef þetta mistekst þá kenni ég honum bara um!“

 

Áskrifendur Eiðfaxa geta nálgast þriðja tölublaðið  í vefútgáfunni hér.
Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér.
Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið ingibjö[email protected]. Þá mun hin heiðraða Ingibjörg opna fyrir aðgang að vefútgáfunni.
 
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa í gegnum síma 588-2525 eða rafrænt hér.
Þeir sem kjósa frekar að kaupa blaðið í lausasölu get gert það hér í vefversluninni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link