Þrjú hross hlutu einkunnina 9,5-10 fyrir höfuð í ár

  • 2. september 2020
  • Fréttir

Valdís hlaut 10,0 fyrir höfuð fyrst hrossa með umsagnirnar Fínleg eyru - Vel borin eyru - Vel opin augu - Fínlegt höfuð - Skarpt/þurrt - Svipgott - Bein neflína mynd: Dagbjört Hrund

Nú þegar kynbótasýningum er lokið hér heima og einungis ein sýning er eftir í Evrópu er gaman að renna yfir „níufimmur og tíur ársins“ í einstökum eiginleikum. Fyrsti eiginleikinn sem við tökum fyrir hér á vef Eiðaxa er höfuð.

Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar höfuð er metið er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.

Alls hlutu tvö hross á árinu einkunnina 9,5 og eitt einkunnina 10,0.
Valdís frá Auðsholtshjáleigu hlaut 10,0 og varð þar með fyrsta hrossið frá upphafi dóma til þess að hljóta þá einkunn.

Höfuð

Í þessum eiginleika er gerð, lögun og hlutfallsleg stærð höfuðsins metin, þ.m.t. neflínan og dýpt/þykkt kjálkanna og hversu skarpt höfuðið er. Þá er svipur hestsins, stærð og umgjörð augna, eyrnastaða og gerð eyrnanna metin. Einnig stærð nasanna og lengd munnvika.

 

9,5 – 10

Mjög frítt og fínlegt höfuð, svipgott og skarpt. Eyrun eru þunn og fínleg, hæfilega lokuð og vel sett. Stórt, opið og fjörlegt auga og létt augnaumgjörð. Kjálkarnir eru fínlegir og góð gleidd er á milli þeirra. Neflína bein, nasir flenntar og löng munnvik.

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5-10 fyrir höfuð

 

Nafn Uppruni Einkunn
Valdís Auðsholtshjáleiga 10,0
Dröfn Fet 9,5
Spenna Hofsós 9,5

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link