Þróun á bóluefni gegn sumarexemi

  • 16. desember 2014
  • Fréttir
Bólusetning með próteinbóluefni í eitla lofar góðu.

Á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum fara fram rannsóknir á sumarexemi í hestum. Unnið er að þróun ónæmismeðferðar og farnar nokkrar leiðir í þeirri þróun. Ein leiðin er próteinbóluefni, hestar eru þá bólusettir með ofnæmisvökunum sem valda sumarexemi í ónæmisglæði. Bólusetning með próteinbóluefni í eitla lofar góðu varðandi ónæmismeðferð gegn sumarexemi. 

Sagt er frá stöðu rannsóknar gegn sumarexemi sem fer fram á Keldum í 12. tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link