Þyngdar rannsókn á Heimsmeistaramótinu
Rannsóknarteymi við Hestafræðideild Háskólans á Hólum undir forystu dr. Guðrúnar Jóhönnu Stefánsdóttur mun rannsaka hlutfallið á milli þyngdar knapa og hrossa á Heimsmeistaramótinu. Gögnin verða síðan notuð í lokaverkefni Johannesar Amplatz en hann stundar mastersnám í hestafræði við Háskólann á Hólum.
Á undanförnum árum hefur umfjöllun um þyngd knapa orðið fyrirferðarmeiri og gjarnan er í umræðunni að hlutfallið á milli þyngdar knapa og hests megi ekki vera meira en 20%. Íslenski hesturinn er með langa sögu um að hafa verið notaður sem reiðhestur bæði fyrir fullorðna og börn. En hefðir og gögn byggð á tilfinningu þykja ekki lengur nægileg rök ein og sér til að réttlæta notkun á íslenska hestinum til reiðar. Vísindaleg gögn eru nauðsynleg til að takast á við áframhaldandi umræðu um velferð dýra þ.á.m. hversu mikla þyngd íslenski hesturinn getur borið.
„Í ljósi allrar umræðu um þyngd knapa ákváðum við að gera þessa rannsókn. Hugmyndafræðin er að skoða hvað hlutfallið er á milli þyngdar knapa og hesta við alþjóðlegar aðstæður. Hér erum við komin á stað þar sem hross eru í góðu þjálfunarástandi, oft undir miklu álagi og þurfa að sýna afköst, hér er heilsufarsskoðun framkvæmd á öllum hrossum og því góðar aðstæður til rannsóknar“ segir Guðrún í samtali við Eiðfaxa.
“ Við vigtum knapana og hestana á mótinu og reiknum hlutfallið á milli líkamsþunga þeirra. Það er oft talað um 20% sem ákveðna viðmiðun en það er tala sem kemur úr hernaði og við notkun á stærri hestum og trúlega byggð á reynslu fremur en vísindalegum rannsóknum. Við teljum að þetta hlutfall sé oft hærra milli knapa og íslenska hestsins og fyrri rannsókn sem við gerðum á Hólum á skólahestum sýndi að þeir réðu vel við hærra hlutfall en þessi 20% í stuttan tíma á góðum meðalhraða á tölti.
Við gerum þó meira en að vigta knapana og hestana, því knaparnir svara spurningarlista sem við leggjum fyrir þá. Við vonumst þannig til að fá upplýsinar um þjálfunarálag, heilsufar og endingu í keppni og hvort að mögulega séu einhver tengsl við hversu mikla þyngd þeir bera. Þetta skiptir miklu máli fyrir alla umfjöllun um íslenska hestinn í framtíðinni,“ bætir hún við.
Í gær var allt íslenska landsliðið vigtað, bæði hross og knapar og Guðrún vonast eftir góðri þátttöku frá hinum þjóðunum í rannsókninni. „Við vigtuðum allt íslenska liðið í gær en við vildum taka það á undan öllum hinum til að passa upp á sóttvarnir. Við fengum vigt lánaða hér í Hollandi og var allt sótthreinsað vel og engir hestar búnir að koma nálægt henni áður en íslenska liðið fór á hana. Einnig komum við með mælitækin frá Íslandi til að taka líkamsmál íslensku hestanna. Hin liðin eru síðan að koma á staðinn í dag og vonumst við eftir góðri þátttöku næstu daga en gagnasöfnun lýkur á sunnudaginn. Rannsóknin hefur fengið jákvæðar undirtektir en það skiptir miklu máli upp á gögnin að sem flestir taki þátt,“ segir Guðrún og leggur áherslu á mikilvægi rannsóknarinnar fyrir Íslandshestaheiminn í heild sinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH