Þýska landsliðið kynnt – video-

  • 11. júlí 2011
  • Fréttir
Þýska landsliðið kynnt - video-

Í lok þýsks meistaramóts í Roderath í Þýskalandi kynnti landsliðsstjórinn Horst Klinghart fulltrúa Þýskalands á Heimsmeistaramótinu í Austurríki í byrjun næsta mánaðar.

Þýska liðið skipar eftirfarandi knapar og hross:

Lena Trappe – Bragi frá Austurkoti (titilverjandi frá síðasta móti)
Steffi Kleis – Darri vom Lipperthof
Dörte Mitgau – Ilmur von Ellenbach
Ralf Wohllaib – Eldur von Schwäbischen Wald
Melanie Müller – Bjarkar frá Þverá
Jonas Hassel – Blaer vom Birkenhof
Vicky Eggertsson – Kvikur vom Barghof
Frauke Schenzel – Tígull vom Kronshof
Karly Zingsheim – Dagur
Nicole Mertz – Odinn vom Moorflur
 
Ungmennaflokkur
Johanna Beuk – Merkur von Birkenlund
Annabell Steuer – Geisa frá Reykjavík
Christopher Weiss – Simba vom Steinadlerhof
Marleen Stühler – Baldur vom Sonnenreiter
 

Henning Drath var staddur á mótinu í Roderath og tók eftirfarandi myndbönd. Þar má sjá Frauke Schenzel og Tígull vom Kronshof sem munu etja kappi við Huldu Gústafsdóttur og Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu í fjórgangskeppninni, Steffi Kleis og Darri vom Lipperthof sem munu mæta Eyjólfi Þorsteinssyni og Ósk frá Þingnesi í keppni í slaktaumatölti. Þá má á þriðja myndbandinu sjá þrjá efstu knapa í fimmgangskeppni mótsins, Hauk Tryggvason og Baltasar vom Freyelhof, Dörte Mitgau og Ilmur von Ellenbach ásamt Vicky Eggertsson og Kvikur vom Barghof en þær tvær síðastnefndu munu vera fulltrúar Þýskalands í fimmgangskeppni Heimsmeistarmótsins sem fer fram í St. Radegund í Austurríki daganna 1.-7. ágúst nk.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link