Þýska landsliðið
Þjóðverjar hafa tilkynnt hverjir skipa landslið þeirra fyrir heimsmeistaramótið í Berlín. Eingöngu er tilkynnt að svo stöddu hvaða knapar eru í landsliðinu en ekki hvaða hesta þeir mæta endanlega með. Þjóðverjar hafa undanfarinn ár náð góðum árangri á heimsmeistaramótum og má ætla að þeir stefni að því sama á heimavelli.
Þó svo að ekki sé tilkynnt hvaða hesta hver knapi mætir með, mun blaðamaður Eiðfaxa setja inn þann hest eða hesta sem líklegastir eru hjá hverjum knapa, út frá árangri á Þýska meistaramótinu og fleiri mótum. Það skal tekið fram að þetta er ágiskun blaðamanns.
Frauke Schenzel mun hafa í nógu að snúasta á mótinu því auk þess að taka þátt í íþróttakeppni að þá sýnir hún fjögur af þeim sex kynbótahrossum sem Þjóðverjar tefla fram.
Kynbótahross
7.vetra stóðhestar og eldri; Óðinn vom Habichtswald, aðaleinkunn: 8,79
knapi: Frauke Schenzel
7.vetra hryssur og eldri; Jódís vom Kronshof, aðaleinkunn: 8,59
knapi: Frauke Schenzel
6.vetra stóðhestar; Davíð vom Áland, aðaleinkunn: 8,65
knapi: Þórður Þorgeirsson
6.vetra hryssur; Hamingja vom Isterbergerhof, aðaleinkunn: 8,31
knapi: Eric Winkler
5.vetra stóðhestar; Töfri von Blumencron aðaleinkunn: 8,33
knapi: Frauke Schenzel
5.vetra hryssur; Mæra vom Kronshof, aðaleinkunn: 8,37
knapi: Frauke Schenzel
Ungmenni
Brynja Sophie Árnason – Ríkjandi heimsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum
Líklegur hestur:
Franziska Muser
Líklegur hestur: Spölur frá Njarðvík
Helen Klaas
Líklegur hestur: Víf van‘ t Groote Vel – Þýskur meistari í 100 metra skeiði
Josje Bahl
Líklegur hestur: Alsvinnur vom Wiesenhof – Fjórgangshestur
Leonie Hoppe
Líklegur hestur: Fylkir vom Kranichtal – silfur í F1 á Þýska meistaramótinu
Teresa Schmelter
Líklegur hestur: Sprengja frá Ketilsstöðum – T1
Lea Brill – Varaknapi
Líklegur hestur: Kolgrímur vom Neddern hof – V1 og T2
Fullorðnir
Frauke Schenzel – Ríkjandi heimsmeistari i fimmgangi
Líklegur hestur: Gustur vom Kronshof
Jolly Schrenk – Ríkjandi heimsmeistari í fjórgangi
Líklegur hestur: Glæsir von Gut Wertheim
Olivia Ritschel – Ríkjandi heimsmeistari íT1 og samanlögðum fjórgangsgr. ungmenna
Líklegur hestur: Alvar frá Stóra-Hofi
Bernhard Podlech
Líklegur hestur: Keila vom Maischeiderland – Þýskur meistari í Tölti
Irene Reber
Líklegur hestur: Þokki frá Efstu-Grund – T1 og V1
Karly Zingsheim
Líklegur hestur: Náttrún vom Frostwald – T1 og V1
Lisa Drath
Líklegur hestur: Kjalar frá Strandarhjáleigu – Þýskur meistari í V1
Naty Muller
Líklegur hestur: Pála vom Paulshof
Stefan Schenzel
Líklegur hestur: Óskadís vom Habichtswald – Þýskir meistari í T2
Vicky Eggertsson
Líklegur hestur: Gandur vom Sperlinghof – fimmgangshestur
Viktoria Große
Líklegur hestur: Krummi vom Pekenberg – Skeiðhestur
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH