Þýska meistaramótið í beinu streymi
Þýska meistaramótið í hestaíþróttum fer fram dagana 16.-20. september nk. og að þessu sinni verður hægt að fylgjast með mótinu í beinu streymi. Hægt verður að fylgjast með öllum keppnisgreinum, bæði á hringvelli og skeiðbraut og verða allar upptökur aðgengilegar eftir mótið. Búist er við að u.þ.b. 150 knapar og 220 hestar muni etja kappi á mótinu sem haldið verður á Gestüt Heesberg. Aðgangur að streyminu fyrir allt mótið kostar 49 evrur og er hægt að panta það með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson