Tígurlegar konur á Bellutölti

  • 5. maí 2015
  • Fréttir
Úrslit frá kvennatölti Léttis.

Hestamannafélagið Léttir hélt sitt árlega kvennatölt þann 1. maí síðastliðinn. 

„Mikil stemming er í kringum þetta mót og var þemað í ár „tiger“. Öll umgjörð mótsins var Létti og Bellunum til sóma, Fúsi þulur fór á kostum og dómararnir ásamt öðru starfsfólki voru frábærir.48 konur skráðu sig til leiks í 3 styrkleikaflokkum og mættu þær prúðbúnar og tilbúnar í slaginn. Skemmtilegt var að sjá hve margar konur voru að keppa í fyrsta sinn og frábært hvað sumar gegnu langt í búningavali sínu. 5 efstu konurnar í hverjum flokki riðu svo til úrslita og fengu vegleg verðlaun en auk hefðbundinna verðlauna fengu þær íslenska hönnun sem gefin var af Hugrúnu Ívarsdóttur,“ segir í frétt frá Létti.

Úlfhildur Sigurðardóttir sigraði búningakeppnina en úrslit kvennatöltsins urðu eftirfarandi:

T7 – 2. flokkur
1     María Björk Jónsdóttir / Einir frá Ytri-Bægisá I  6,58   
2     Jónína Sverrisdóttir / Glóð frá Hólakoti  6,33   
3     Ester Anna Eiríksdóttir / Nöf frá Njálsstöðum  5,75   
4     Sigríður Hrefna Jósefsdóttir / Styrmir frá Akureyri  5,50   
5     Ólöf Jósefsdóttir / Tjáning frá Þrastarhóli  5,25   

T3 – 2. flokkur
1     Auður Hallsdóttir / Ósk frá Ysta-Gerði  6,50   
2     Sigríður K Sverrisdóttir / Saga frá Skriðu  6,44   
3     Erla Brimdís Birgisdóttir / Sálmur frá Skriðu  6,06   
4     Andrea Þorvaldsdóttir / Teista frá Akureyri  5,94   
5     Hjördís Bessadóttir / Villandi frá Feti  5,78   

T3 – 1. flokkur
1     Úlfhildur Sigurðardóttir / Sveifla frá Hóli  6,83
2     Helga Árnadóttir / Skriða frá Hlemmiskeiði  6,78
3     Anna Catharina Gros / Sátt frá Grafarkoti  6,72
4-5     Þóra Höskuldsdóttir / Sólfaxi frá Sámsstöðum  6,28
4-5     Sandra Marin / Stikla frá Efri-Mýrum  6,28

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link