Til alls líkleg
Tamningakonan Karen Líndal Marteinsdóttir er komin með nýjan keppnishest í þjálfun. Sá er ungur og efnilegur stóðhestur, Daggar frá Einhamri.
Karen er þaulreyndur knapi sem keppti m.a. fyrir hönd Íslands á Heimsmeistaramótinu í Berlín árið 2013 á stóðhestinum Tý frá Þverá II. Karen og Týr höfðu þá vakið verðskuldaða athygli á keppnisvellinum, og urðu m.a. í 3. sæti í fjórgangi á Íslandsmótinu 2013.
Daggar frá Einhamri er á sjötta vetri, undan Orra frá Þúfu og Gustu frá Litla-Kambi, Gustsdóttur frá Hóli. Hann hefur hlotið 8,19 í aðaleinkunn kynbótadóms, þar af hlaut hann 8,42 fyrir kosti þegar hann var aðeins 4 vetra gamall. Karen hyggst tefla Daggari fram í fimmgangskeppni og eru þau til alls líkleg.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH