Til hamingju!

  • 7. ágúst 2011
  • Fréttir
Til hamingju!

Með stórbrotinni töltkeppni lauk viðburðarríku vikulöngu Heimsmeistaramóti í St. Radegund í Austurríki. Við Íslendingar getum verið verulega stolt af árangri liðsins, við getum stært okkur af sjö heimsmeisturum í ár, fjórum á keppnisbrautinni og þremur í kynbótasýningum, ásamt fjölmörgum verðlaunahöfum.

Eins og búast má við á svo stóru móti skiptust á skin og skúrir, og þetta árið má segja að svo hafi verið í bókstaflegri merkingu. Fyrir utan þá titla sem við hlutum stendur upp úr gríðarlega góður árangur unga fólksins okkar. Þau sýndu af sér mikinn þokka og prúðmannlega reiðmennsku, komu vel fyrir bæði innan sem utan vallar. Við getum horft björtum augum fram á veginn með þessa fyrirmyndarknapa í fararbroddi Íslandshestamennskunnar.

Eiðfaxi óskar öllum aðstandendum Íslenska landsliðsins til hamingju með árangurinn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link