Tímavélin – Afastrákurinn kominn með taktana aðeins þriggja ára
Tímavélin stoppar að þessu sinni á árinu 1995. Í 2. tölublaði Eiðfaxa það ár er skemmtilegt viðtal við leikarann, hagyrðinginn og hestamanninn Flosa Ólafsson. Þar ræðir hann um sína hestamennsku og sveitastörfin á Stóra-Aðalbergi í Reykholtsdal í Borgarfirði, hvar hann hafði þá búið um sex ára skeið með konu sinni Lilju Margeirsdóttur.
Í lok viðtalsins segir Flosi meðal annars: „Ekkert er eins gaman og að leggja á og halda til fjalla, vel ríðandi í góðum og glöðum félagsskap með sveitungum sínum eða sínum nánustu og yfirleitt fólki sem manni þykir vænt um. Sonur okkar, tengdadóttir og þeirra börn eru á kafi í hestamennsku. Og þó nafni minn Flosi sé ekki nema þriggja ára sé ég ekki betur en hann sé kominn með taktana.“
Flosi eldri sá því augljóslega hvað framtíðin bjó í skauti sér fyrir barnabarnið, en fyrir þá sem ekki þekkja, þá er þriggja ára guttinn frá 1995 alnafni afa síns, Flosi Ólafsson tamningamaður og stórknapi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH