Tímavélin: Svona var landsmót hestamanna árið 1990
“Tímavélin er með aðeins öðruvísi sniði þessa vikuna en með hjálp frá fréttastofu RÚV gátum við stillt tímavélina á árið 1990. Við erum skyndilega stödd á landsmóti hestamanna sem fram fór á Vindheimamelum í Skagafirði.
Landsmót hestamanna eru iðulega mikil skemmtun þar sem saman kemur gríðarlegur fjöldi hestaáhugamanna. Dagskráin var stútfull að venju og um tíu þúsund manns voru saman komin á mótsvæðinu.
Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti Íslands, lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á mótinu. Tók hún meðal annars þátt í hópreið á vegum hestamannafélaga landsins og reið þar gráum fáki.
Aldrei að vita nema einhver lesandi okkar sjái glitta í sjálfan sig, 23 árum yngri en hann er í dag!,“ segir í frétt á Pressunni en hér má sjá umfjöllun Ríkissjónvarpsins um landsmót hestamanna árið 1990, sem fram fór á Vindheimamelum í Skagafirði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH