Tíurnar
Þrjár tíur voru gefnar fyrir hæfileika í ár en það var 10 fyrir tölt, skeið og hægt tölt. Sending frá Þorlákshöfn hlaut 10 fyrir tölt en hún hlaut í aðaleinkunn 8.64 og varð hæst dæmda klárhryssa heims. Sending er ein af fimmtán hrossum sem hafa hlotið 10 fyrir tölt en hún var sýnd af Helgu Unu Björnsdóttur. Sending er undan Álfi frá Selfossi og Koltinnu frá Þorlákshöfn. Örvar frá Gljúfri hlaut 10 fyrir skeið en hann var sýndur af Árna Birni Pálssyni. Örvar er 7 vetra undan Stála frá Kjarri og Ör frá Gljúfri. 10 fyrir hægt tölt hlaut Spes frá Herríðarhóli en hún er undan þrefalda Íslandsmeistaranum og landsmótssigurvegaranum í tölti, Stormi frá Herríðarhóli, og Sögu frá Herríðarhóli. Sýndandi Spes var Hekla Katharína Kristinsdóttir. Í fyrra voru 10 tíur gefnar fyrir hæfileika, þrjár fyrir tölt, fimm fyrir skeið, ein fyrir hægt tölt og ein fyrir vijla og geðslag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands