Tölt og gæðingaskeið á Ólympíuleika

  • 23. desember 2012
  • Fréttir
Tölt og gæðingaskeið á Ólympíuleika

Kristinn Hugason hrossaræktarmaður ritar grein í jólablað Eiðfaxa. Þar lýsir hann skoðun sinni á framtíð íslenska hestsins og telur hana ráðast af því hvort takist að vinna honum verðugan sess á meðal sporthestakynja heimsins.

 
“Nú um stundir er mikið rætt um verndun fjölbreytileika en skynsamir menn úr hópi fræðimanna í búfjárrækt hafa bent á að slík vend búfjárstofna sé dæmd til að mistakast, nema að kynjunum sé fundið nýtt hlutverk. Þetta tókst brautryðjendum nútíma hestamennsku á Íslandi svo sannarlega. Á sömu braut verðum við að halda áfram og sú braut verður að liggja áfram og hærra!
 
Til að ná fótfestu í þessari baráttu þurfum við að huga að öðru og meira alþjóðlegu samstarfi en einungis innan FEIF, því við verðum að huga að samstarfi út fyrir íslenska hrossakynið. Hafa ber fyrir stafni það markmið að koma íþróttum á íslenskum hestum inn á Ólympíuleikanna og þar yrði keppt í tveimur sérgreinum íslenska sporthestsins: Töltkeppni og gæðingaskeiði,” segir Kristinn m.a. í grein sinni sem nálgast má í jólablaði Eiðfaxa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link