Töltfimin á Strömsholm
Norski knapinn Nils-Christian Larsen hefur staðfest þátttöku sína í Töltfimi á Strömsholm 9. mars. Ekki er getið um hvaða hesti hann hyggst keppa á. Myndin er tekin á HM2009.
Töltfimi Hestablaðsins og FT verður á meðal keppnisgreina í sænsku mótaröðinni á Strömsholm í vetur, sem er þriggja móta röð. Mikill áhugi er fyrir þessari nýju keppnisgrein í Svíþjóð og nokkrir af fremstu knöpum Skandinavíu hafa líst áhuga sínum á að taka þátt. Tekið skal fram að Töltfimin er ennþá í mótun og endanlegur leiðari hefur ekki verið gefinn út.
Það er Íslendingurinn Denni Hauksson sem er forsprakkinn að þessari tilraun. Hann hefur búið og starfað við tamningar og hrossarækt í Svíþjóð í tuttugu ár. Fáguð reiðmennska hans og áseta vekur jafnan eftirtekt og hross sem hann mætir með í keppni og sýningar skera sig úr fyrir fallegt og spennulaust form. Hann mun þó ekki keppa sjálfur að þessu sinni en er staðráðinn í að mæta sterkur til leiks síðar á árinu.
„Mér leist strax vel á Töltfimina um leið og hún var kynnt,“ segir Denni. „Við höfum þó gert á henni smávægilegar breytingar í þá átt að létta hana og gera hana þar með aðgengilegri. Þetta er snúin grein þótt hún virðist auðveld við fyrstu sýn. Aðeins góðir reiðmenn á vel þjálfuðum hestum eru færir um að leysa þetta verkefni svo vel sé.
Nokkrir af fremstu reiðmönnum á íslenskum hestum hér ytra hafa sýnt Töltfiminni áhuga, þar með taldir Jóhann Skúlason, Stian Petersen og Nils-Christian Larsen. Sá síðastnefndi hefur staðfest þátttöku á síðasta mótinu 9. mars. Á fyrsta mótinu nú á laugardaginn mun Töltfimin verða kynnt til sögunnar. Eitt eða tvö pör munu ríða prógrammið. Á öðru og þriðja mótinu munu valdir knapar keppa um vegleg verðlaun.“
Nánar er rætt við Denna Hauksson í Hestablaðinu sem kemur út 31. janúar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH