Töltið næst á dagskrá
“Fimmtudaginn 14 mars kl. 19:00 verður keppt í tölti í Meistaradeild í hestaíþróttum.
Forsala aðgöngumiða hefst í dag í verslunum Top Reiter, Líflandi og hjá Baldvin og Þorvald á Selfossi. Aðgangseyrir á mótið er 1.500 krónur og gera má ráð fyrir húsfylli og því er um að gera að tryggja sér miða í tíma.
Það voru þær stöllur Sara Ástþórsdóttir, Ganghestar/Málning, og Díva frá Álfhólum sem stóðu uppi sem sigurvegarar í töltinu í fyrra eftir alveg hreint stórglæsilega sýningu í A úrslitum með einkunina 8,72. Í öðru sæti varð John Kristinn Sigurjónsson, Hrímnir, á Tóni frá Melkoti með einkunnina 8,06 og þriðji varð Eyjólfur Þorsteinsson, Lýsi, á Háfeta frá Úlfsstöðum með einkunnina 7,94.
Það stefnir í hörkukeppni í næstu viku og hestakosturinn verður svakalegur.
Heyrst hefur nú þegar að Guðmundur Björgvinsson mæti með Hrímni, Árni
Björn mæti kannski með Storm frá Herriðarhóli og svo er Topreiter liðið
að skoða Tón frá Melkoti og Eld frá Köldukinn. Þorvaldur verður
væntanlega með Glampadótturina hana Stjörnu og Viðar kemur annað hvort
með Kringlu frá Jarðbrú eða Vornótt frá Hólabrekku. Hulda mætir
væntanlega á Katli frá Kvistum en svo stendur valið á milli gæðinganna
Fjölnis frá Akureyri, Sleipnis frá Árnanesi og Smyrils frá Hrísum. Það
verður spennandi að sjá hver af þeim mætir í höllina.
Þetta er einungis fyrstu fréttir af hestakostinum sem mun gleðja okkur
í næstu viku. Væntanlega meiri fréttir eftir æfingatíma helgarinnar.
Staðan í einstaklingskeppninni er mjög spennandi. Mörg stig eru eftir
í pottinum og staðan er fljót að breytast. Guðmundur Björvinsson
leiðir með 32 stig, í öðru sæti er svo Sigurður Sigurðarson með 20 stig
og Eyjólfur með 14 stig.
Liðakeppnin er ekki síður spennandi. Þar leiðir lið Topreiter/Ármóts
með 161 stig, í öðru sæti er lið Lýsis með 142,5 stig og í þriðja sæti
lið Árbakka/Hestvit með 112,5 stig.
Hvetjum enn og aftur alla til að tryggja sér miða á eina af mestu
töltveislum vetrarins,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH