Töltþjálfun fyrir alla
Fimmtudaginn 13. febrúar verður haldið fræðslukvöld um þjálfun tölts í reiðhöllinni á Hvammstanga. Farið verður yfir grunnatriði tölts, hvernig á að þjálfa það með tilliti til ákveðinna galla í gangtegundinni og hvernig þeir eru lagaðir. Einnig hvernig má halda áfram að bæta tölt þó það sé gott.
Fræðslukvöldið er haldið af þremur reiðkennaraefnum Hólaskóla þeim Arnari Bjarki Sigurðarsyni, Hilmari Þór Sigurjónssyni og Petronellu Hannula. Kvöldið byrjar á fyrirlestri um tölt og tæknileg atriði við þjálfunina. Þau atriði verða síðan sýnd í í sýnikennslu og hvernig má nota þau til að hjálpa við tölt reið.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 19:00
500 kostar inn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH