Töltveisla í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum
Efstu knapar í tölti í 1.deild Hringdu á síðasta keppnistímabili
Keppni í tölti T1 fer fram í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum í kvöld í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Það er Útfararstofa Íslands sem býður gestum frítt í höllina. Hlaðborð frá Flóra veisluþjónustu með öllu tilheyrandi verður í boði á sanngjörnu verði. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Keppni hefst klukkan 19:00.
Gæðingaval
Þegar rýnt er í ráslista kvöldsins má sjá marga knapa og hesta sem góðum árangri hafa náð í tölti auk spennandi hrossa sem hlotið hafa góðan kynbótadóm eða gert það gott í öðrum keppnisgreinum.
Að öðrum ólöstuðum verður fyrstan að nefna Vísi frá Kagaðarhóli og Pál Braga Hólmarsson. Þeir hafa verið á meðal fremstu töltpara landsins um nokkurra ára skeið og teljast sigurstranglegir fyrir kvöldið. Hermann Arason og Náttrún Ýr frá Herríðarhóli hafa náð góðum árangri í þessari grein og hlutu m.a. 7,33 í forkeppni á Reykjavíkurmeistaramóti í fyrra auk þess að verða í 2.sæti í þessari grein í 1.deildinni í fyrra. Ólöf Rún Guðmundsdóttir og Hringhenda frá Geirlandi náðu þá líka góðum árangri á síðast keppnistímabili og hlutu hæst 7,30 í forkeppni. Helgi Þór Guðjónsson mætir á Þresti frá Kolsholti sem hefur gert það gott í töltkeppni og m.a. hlaut hann 7,27 í einkunn á síðasta ári. Sól frá Söðulsholti og Siguroddur Pétursson voru í úrslitum í tölti 1.deildar í fyrra og hafa mikla keppnisreynslu.
Ráslisti kvöldsins
| 1 | Haukur Tryggvason | Hrafnkatla frá Hvoli |
| 2 | Vilborg Smáradóttir |
Ræðu-Jarl frá Brúnastöðum 2
|
| 3 | Helgi Þór Guðjónsson | Þröstur frá Kolsholti 2 |
| 4 | Sunna Sigríður Guðmundsdóttir | Jökull frá Þingbrekku |
| 5 | Benedikt Ólafsson | Rökkvi frá Ólafshaga |
| 6 | Páll Bragi Hólmarsson | Vísir frá Kagaðarhóli |
| 7 | Siguroddur Pétursson | Sól frá Söðulsholti |
| 8 | Lea Schell | Húni frá Efra-Hvoli |
| 9 | Reynir Örn Pálmason | Agnar frá Margrétarhofi |
| 10 | Þórdís Inga Pálsdóttir | Móses frá Flugumýri II |
| 11 | Jóhann Kr. Ragnarsson | Eiðfaxi frá Lækjarbotnum |
| 12 | Hermann Arason | Náttrún Ýr frá Herríðarhóli |
| 13 | Katla Sif Snorradóttir | Sæmar frá Stafholti |
| 14 | Eysteinn Tjörvi Kristinsson | Fortíð frá Ketilsstöðum |
| 15 | Hlynur Guðmundsson | Neisti frá Ytri-Skógum |
| 16 | Henna Johanna Sirén | Öfgi frá Káratanga |
| 17 | Thelma Dögg Tómasdóttir | Bóel frá Húsavík |
| 18 | Ólöf Rún Guðmundsdóttir | Hringhenda frá Geirlandi |
| 19 | Hafþór Hreiðar Birgisson | Löngun frá Dýrfinnustöðum |
| 20 | Katrín Ólína Sigurðardóttir | Ólína frá Skeiðvöllum |
| 21 | Birna Olivia Ödqvist | Tál frá Hámörk |
| 22 | Anna Björk Ólafsdóttir | Spenna frá Bæ |
| 23 | Anna Valdimarsdóttir | Þokki frá Egilsá |
| 24 | Frederica Fagerlund | Stormur frá Yztafelli |
Stutt á milli í einstaklingskeppni
Það er mjótt á munum í einstaklingskeppninni og stefnir í spennandi keppni allt fram á lokastundu. Þær Katla Sif Snorradóttir og Lea Schell eru jafnar í efsta sætinu sem stendur með 23,5 stig. Katla mætir til leiks í töltið á Sæmari frá Stafholti sem hún hefur gert góða hluti á. Það sama má segja um Leu sem mætir á honum fjölhæfa Húna frá Efra-Hvoli. Þriðja er svo Þórdís Inga Pálsdóttir með 22 stig en hún keppir í töltinu á hinum fasmikla Móses frá Flugumýri II.
1.-2 Katla Sif Snorradóttir 23,5
1.-2 Lea Schell 23,5
3. Þórdís Inga Pálsdóttir 22
4.-5. Páll Bragi Hólmarsson 17
4.-5. Hlynur Guðmundsson 17
6. Benedikt Ólafsson 16
7. Ólafur Þórisson 12,5
8. Ólöf Rún Guðmundsdóttir 12
9. Birna Olivia Ödqvist 12
10. Fredrica Fagerlund 9
Lið Fornusanda leiðir með töluverðu forskoti í liðakeppnini með 231 stig en þau hafa gert það stórgott í öllum keppnisgreinum hingað til. Í öðru sæti er svo lið Hrímnis með 184 stig og í því þriðja er lið Sportfáka með 163,5 stig. Það stefnir því í baráttu á öllum vígstöðum bæði í töltkeppninni sjálfri og í einstaklings og liðakeppni. Hestaáhugafólk er því hvatt til þess að mæta í Hafnarfjörð í kvöld en fyrir þá sem ekki þangað komast að fylgjast með í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
- Fornusandar 213
- Hrímnir 184
- Sprotfákar 163,5
- Vindás/Stóðhestaval 143
- Kidka/Hestakoti 132
- HorseDay 122
- Hringdu 114
- Tommy Hilfiger 110,5
Hér að neðan má sjá þegar þeir Arnar Bjarki Sigurðarson og Sverrir Einarsson drógu í rásröð og veltu hestakosti fyrir sér.
Töltveisla í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Barist til þrautar í Meistaradeild KS