„Toppurinn á hestamennskunni að öðru ólöstuðu“
Eiðfaxi heldur áfram að kynnast hrossaræktarbúum um land allt. Hrossaræktarbúið Stormur er við Iðavelli á Fljótsdalshéraði. Þar búa hjónin Einar Ben Þorsteinsson og Melanie Hallbach ásamt dætrum sínum Eddu Lind og Hörpu Rós en elsti sonurinn Grímur Nói býr í Mosfellsbænum.
“Við erum með 3 hænur og 1 hana, svo eigum við Border collie tík sem heitir Mýra. Einnig eru hér rjúpnapör á vorin og sumrin en karrinn veldur semsagt fjölskyldunni svefnraski á nóttunni þegar hann virðist “skaka sér” á þakskyggninu eins og graðfoli. Annars er mest um hrossinn eða um 30 hausar,” segir Einar aðspurður um fjölda búfjár á jörðinni.

Séð heim að Stormi
Fá um fjögur til fimm folöld á ári
Ræktunin er ekki stór en þau eru að fá um fjögur folöld á ári. “Við fengum þrjú hestfolöld og eitt merfolald. Eitt þeirra er undan Sólon frá Þúfum og Matthildi frá Stormi. Þrjú þeirra eru undan Heiðri frá Eystra Fróðholti, undan hryssunum Eddu frá Egilsstaðabæ, Litlu Stjörnu frá Stormi og Vindhviðu frá Stormi,” segir Einar en í sumar héldu þau fimm hryssum undir þá Ský frá Skálakoti, Seið frá Hólum, Sólfaxa frá Herríðarhóli, Stormsker frá Stormi og Sjakala frá Stormi.
Þrátt fyrir litla ræktun voru þrjú hross sýnd frá búinu í ár, Sjakali fór í 8,21 í aðaleinkunn 5 vetra og Stormsker fór í 8,05 í aðaleinkunn fjögurra vetra en báðir eru þeir eru báðir undan gæðingshryssunni Eddu frá Egilsstaðabæ sem hlaut á sínum tíma 8,81 fyrir hæfileika. Þriðja hrossið var sýnt á Fjórðungsmótinu í sumar en það var hún Maísól sem hlaut 7,91 í aðaleinkunn, fjögurra vetra. Hún er sammæðra Eddu og er faðir hennar Steinn Steinarr frá Útnyrðingsstöðum.
Rólegar frumtamningar
Aðspurður hvað sé spennandi að koma í frumtamningu segir Einar það vera Ómsdóttir undan Litlu Stjörnu frá Stormi. “Þetta ár er rólegt í frumtamningum, sendum eina Ómsdóttir í frumtamningu hjá Þorgils Kára í Kolsholti og svo verður nuddað áfram með hrossin sem voru sýnd í sumar auk eldri hrossa. Það verður mest spennandi að sjá hvernig mun ganga hjá Jóni á Hrafnagili í vetur,” segir hann en þau fjölskyldan eru oftast með 8 til 10 hross á járnum.
Heilt yfir var þetta nokkuð gott ár hjá hrossaræktarbúinu Stormi og bíða þau spennt eftir Landsmóti á næsta ári.
“Landsmótið verður spennandi. Mikið af nafntoguðum stóðhestum farið úr landi síðan á síðasta LM, og verður gaman að fylgjast með hverjir taka við keflinu. Einnig verður gaman að sjá gæðingakeppnirnar á LM, sem eru toppurinn á hestamennskunni að öðru ólöstuðu.”

Einar á gæðingi sínum Eddu frá Egilsstaðabæ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH