TREC-NEFND LH

  • 21. febrúar 2017
  • Fréttir
BÝÐUR NÝJA FÉLAGA VELKOMNA!

TREC nefnd LH hefur tekið til starfa að nýju og óskar eftir áhugasömum meðlimum til samstarfs.Þeir sem hafa áhuga á að starfa með nefndinni eru vinsamlegast beðnir um að senda póst á [email protected] fyrir 1.mars 2017.

TREC er ný keppnisgrein sem hefur verið að ryðja sér til rúms víðsvegar um heim. Keppnisgreinin samanstendur af þrautabraut, gangtegundakeppni og ratleik sem hentar öllum aldurshópum og öllum hrossum. Hérlendis hefur nokkrum sinnum verið keppt í hluta af TREC, þá oftast í þrautabrautinni. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá keppni í TREK sem var sett upp á Melgerðismelum – http://youtu.be/GCQc-vhyoaE

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link