Tryggvi Björnsson knapi ársins hjá Þyt

  • 16. nóvember 2009
  • Fréttir
Tryggvi Björnsson knapi ársins hjá Þyt

Þá er Uppskeruhátíðinni lokið þetta árið og var hún auðvitað mjög skemmtileg eins og alltaf. Verðlaun voru veitt fyrir stigahæstu knapa ársins, efstu ræktunarhross í hverjum flokki og ræktunarbú ársins.

Stigahæstu knapar ársins 2009 eru:

1.    flokkur

Tryggvi Björnsson.
Tryggvi er búinn að standa sig frábærlega á árinu. Hér kemur upptalning á því helsta. Í Húnvetnsku liðakeppninni sigraði hann töltið á Braga frá Kópavogi, vann fimmganginn á Herði frá Reykjavík og endaði annar í fjórgang á Hrannari frá Íbislhóli. Á ístölti Austurlands vann hann tölt á Júpiter frá Egilsstaðabæ, endaði annar í A-fl. á Herði frá Reykjavík og 5. í B-flokki á Glampa frá Stóra Sandfelli. Á ísmóti Riddaranna varð hann í þriðja sæti í B-flokki á Glampa frá Stóra Sandfelli og í öðru sæti í A-flokki á Herði frá Reykjavík.
Á íþróttamóti UMSS, varð Tryggvi annar í tölti og fjórgangi á Braga frá Kópavogi og því samanlagður sigurvegari fjórgangsgreina. Á Bautamótinu endaði hann í 5. sæti á Braga.
Á Félagsmóti Þyts vann Tryggvi B-flokkinn á Akki frá Brautarholti og varð annar á Braga frá Kópavogi. Hann vann A-flokkinn á Grásteini frá Brekku. Á Fjórðungsmótinu enduðu þeir Akkur svo fjórðu í B-flokki.
Á Íþróttamóti Þyts vann Tryggvi 100 m skeið á Herði frá Reykjavík og 150 m skeið á Funa frá Hofi. Á Fákaflugi endaði Tryggvi í 2. sæti á Braga og vann 100 m skeið á Herði. Á stórmóti á Melgerðismelum vann hann B-flokkinn á Braga frá Kópavogi og endaði í 5 sæti á Hraða frá Úlfsstöðum. Á Metamóti Andvara endaði hann í 7 sæti í B-flokki á Braga frá Kópavogi.
Fyrir utan þetta er Tryggvi búinn að sýna fjöldann allan af kynbótahrossum á árinu sem kemur ekki með til útreiknings á knapa ársins hjá Þyt.

Ungmennaflokkur:
Helga Una Björnsdóttir. Í ungmennaflokki á Fjórðungsmóti sigraði hún á Karitas frá Kommu með einkunnina 8,57. Á mótinu hlaut Helga einnig reiðmenntunarverðlaun Félags tamningamanna fyrir glæsilegan árangur. Helga er eins og allir vita afar efnilegur knapi sem á bjarta framtíð fyrir sér. Á Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna, keppti Helga í 4-gangi og 5-gangi. Helga keppti á Hljómi frá Höfðabakka í 4-gangi og enduðu þau í 7. sæti og í 5-gangi keppti hún á Abbadís frá Feti og enduðu þær í 6. sæti svo eitthvað sé nefnt af hennar árangri á árinu.
Helga Una var líka tilnefnd sem efnilegasti knapi landsins 2009.

 

2.    Flokkur

Hjördís Ósk Óskarsdóttir.
Hjördís stóð sig vel á árinu. Í Húnvetnsku liðakeppninni, varð þarð hún önnur í tölti og fjórgangi á Þrótti frá Húsavík. Á Gæðingamóti Þyts varð Hjördís í fjórða sæti í B-flokki á Hvin frá Sólheimum og á Íþróttamóti Þyts varð hún í 2. sæti í tölti og vann fjórgang á Þrótti frá Húsavík.

Viðurkenningar kynbótahrossa:
Þessum viðurkenningum má skipta í þrennt, í fyrsta lagi fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin í hverjum aldurshópi. Í öðru lagi fyrir hæst dæmdu hryssuna og hæst dæmda stóðhestinn óháð aldri. Og í þriðja lagi hrossaræktarbú ársins í Húnaþingi vestra. Þau hross sem fá viðurkenningu  þurfa að vera í eigu félagsmanna. Við val á hrossaræktarbúi ársins eru talin saman öll hross fædd á viðkomandi búi – sem til dóms hafa komið á árinu – og þeim gefin stig eftir árangri þeirra og aldri við dóm.

Grafarkot var valið ræktunarbú ársins 2009. 13 hross sýnd, meðaleinkunn 7.91 og 5 hross í fyrstu verðlaun.
 

Viðurkenningar kynbótahrossa:
4. vetra hryssur:
1. sæti: Kara frá Grafarkoti
            Bygg: 8,33 Hæfil. 7,80. Aðaleink. 8,01
            Eigendur: Indriði Karlsson og Herdís Einarsdóttir
            Sýnandi: Tryggvi Björnsson

2. sæti: Bylting frá Bessastöðum
            Bygg: 7,98  Hæfil: 7,85  Aðaleink: 7,91
            Eigandi og sýnandi: Jóhann B Magnússon

3. sæti: Eik frá Grund

            Bygg . 7,98  Hæfil: 7,49  Aðaleink: 7,69
            Eigendur: Þórir Ísólfsson og Ísólfur Líndal Þórisson
            Sýnandi: Ísólfur Líndal Þórisson

5. vetra hryssur:
1. sæti: Brimkló frá Efri-Fitjum
            Bygg: 8,07 Hæfil 8,23 Aðaleink. 8,17
            Eigendur: Gunnar Þorgeirsson og Gréta B Karlsdóttir
            Sýnandi: Tryggvi Björnsson

2. sæti: Fregn frá Vatnshömrum
            Bygg: 7,94 Hæfil. 8,17 Aðaleink. 8,08
            Eigandi og sýnandi: Jóhann B Magnússon

3. sæti: Hrönn frá Leysingjastöðum
            Bygg: 7,91  Hæfil: 8,06 Aðaleink: 8,0
            Eigendur: Ísólfur L Þórisson og Vigdís Gunnarsdóttir
            Sýnandi: Ísólfur L Þórisson

6. vetra hryssur:
1. sæti: Líf frá Syðri Völlum
   Bygg: 8,14  Hæfileik: 8,29 Aðaleinkunn 8,23
   Líf frá Syðri Völlum er jafnframt hæst dæmda hryssan á félagssvæðinu.
            Eigendur: Reynir Aðalsteinsson og Lars Andersson
            Sýnandi: Einar Reynisson

2. sæti: Skinna frá Grafarkoti
    Bygg: 7,99 Hæfil: 8,03 Aðaleink: 8,02
    Eigendur: Indriði Karlsson og Herdís Einarsdóttir
    Sýnandi: Herdís Einarsdóttir
  
3. sæti: Dröfn frá Síðu
            Bygg: 7,61  Hæfil: 8,28 Aðaleink: 8,01
            Eigandi: Jón Júlíusson
            Sýnandi: Guðröður Ágústsson

7. vetra hryssu og eldri:
1. sæti: Snælda frá Bjargshóli   
            Bygg: 7,94  Hæfil: 8,33 Aðaleink: 8,18
            Eigandi: Eggert Pálsson
            Sýnandi: Sigurður Vignir Matthíasson

2. sæti: Dís frá Stóru Ásgeirsá
            Bygg: 8,08  Hæfil: 8,12 Aðaleink: 8,14
            Eigandi: Ingolf Nordal
            Sýnandi: Tryggvi Björnsson

3. sæti: Þruma frá Stóru Ásgeirsá
            Bygg: 7,90 Hæfil: 8,10 Aðaleink: 8,02
            Eigandi: Ingolf Nordal
            Sýnandi: Þórður Þorgeirsson

Enginn 4. vetra stóðhestur í eigu félagsmanna var sýndur á árinu.
 

5. vetra stóðhestar:
1. sæti: Kufl frá Grafarkoti
            Bygg 7,98 Hæfil. 7,89 Aðaleink. 7,93
            Eigendur: Indriði Karlsson og Herdís Einarsdóttir
            Sýnandi: Tryggvi Björnsson

2. sæti Kaleikur frá Grafarkoti
            Bygg 8,02, Hæfil. 7,72 Aðaleink. 7,84
            Eigendur Indriði Karlsson og Herdís Einarsdóttir
            Sýnandi: Elvar Logi Friðriksson

6. vetra stóðhestar
1. sæti: Ræll frá Gauksmýri
             Bygg: 7,93  Hæfil: 8,50  Aðaleink: 8,27
             Eigendur: Jóhann Albertsson og Sigríður Lárusdóttir
             Sýnandi: Tryggvi Björnsson

7. vetra og eldri stóðhestar:
1. sæti: Kraftur frá Efri-Þverá
            Bygg; 8,22 Hæfil. 8,36 Aðaleink. 8,31
            Eigandi: Sigurður Halldórsson
            Sýnandi: Ísólfur Líndal Þórisson

2. sæti: Grettir frá Grafarkoti
            Bygg: 8,18 Hæfil. 8,26 Aðaleink. 8,23
            Eigandi og sýnandi: Herdís Einarsdóttir

3. sæti: Sikill frá Sigmundarstöðum
            Bygg: 8,04 Hæfil. 8,34 Aðaleink. 8,22
            Eigendur: Gunnar Reynisson og Soffía Reynisdóttir
            Sýnandi: Reynir Aðalsteinsson

Grettir frá Grafarkoti og Herdís Einarsdóttir. Grafarkot var valið ræktunarbú ársins hjá Þyt.

Á titilmyndinni er knapi ársins hjá Þyt, Tryggvi Björnsson á Braga frá Kópavogi.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link