Tvær 10 fyrir skeið

  • 1. september 2021
  • Fréttir

Kastor frá Garðshorni og sýnandi hans Konráð Valur Sveinsson á Landssýningunni á FM2021

Alls hlutu fjórtan hross 9,5 eða hærra fyrir skeið í kynbótadóm á árinu hér á landi. Meðalaldur þessara hrossa er 7,21 ár. Af þessum fjórtán hrossum eru fjórir stóðhestar. Níu hlutu einkunnina á vorsýningu, þrjú á miðsumarssýningu og tvö á síðsumarssýningu.

Tveir hestar hlutu 10 fyrir skeið en það voru þeir Kastor frá Garðshorni á Þelamörk og Tangó frá Litla-Garði. Það var Konráð Valur Sveinsson sem sýndi þá báða.

Kastor hlaut einkunnina tvisvar sinnum í sumar, fyrsta á vorsýningu á Hólum síðan á vorsýningu á Sörlastöðum en þar hlaut hann í aðaleinkunn 8.48, fyrir hæfileika 8.62 og sköpulag 8.22 en það er hæsti dómur sem hann hefur hlotið. Ræktendur Kostors eru Birna Tryggvadóttir Thorlacius og Agnar Þór Magnússon en Konráð er eigandi ásamt Guðrúnu Eddu Bragadóttur og Sveini Ragnarssyni. Kastor er undan heiðursverðlaunahestinum Kiljani frá Steinnesi og Vissu frá Lambanesi sem er undan Glym frá Innri-Skeljabrekku og Eldingu frá Lambanesi

Tangó hlaut 10 fyrir skeið á auka-miðsumarssýningunni á Hellu og fyrir hæfileika hlaut hann 8.28, sköpulag 8.21 sem gerir í aðaleinkunn 8.26. Ræktendur eru Stefán Birgir Stefánsson og Herdís Ármannsdóttir en eigendur eru Konráð, Guðrún Edda Bragadóttir og Sveinn Ragnarsson. Tangó er undan Gangster frá Árgerði og Melodíu frá Árgerði en hún er Ófeigsdóttir og móðir hennar er Birta frá Árgerði.

Þórarinn Eymundsson er sýnandi af tveimur hrossum sem hlutu 9,5 fyrir skeið en það eru þær Álfamær frá Prestsbæ og Gjöf frá Hofi á Höfðaströnd. Álfamær er undan Spuna frá Vesturkoti en hann á tvö afkvæmi í þessum hópi, Álfamær og Fjalladís frá Fornusöndum sem var sýnd af Elvari Þormarssyni.

Listi með þeim hrossum sem hlutu 9,5 og 10 fyrir skeið.

Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi
Álfamær Prestsbæ Þórarinn Eymundsson
Fjalladís Fornusöndum Elvar Þormarsson
Fjóla Eskiholti II Valdís Björk Guðmundsdóttir
Gjöf Hofi á Höfðaströnd Þórarinn Eymundsson
Heiður Hofsstaðaseli Bjarni Jónasson
Kastor Garðshorni á Þelamörk Konráð Valur Sveinsson
Kátína Syðra-Langholti Steingrímur Sigurðsson
Nökkvi Hrísakoti Jakob Svavar Sigurðsson
Orka Mið-Fossum Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Rosi Berglandi I Guðmar Freyr Magnússon
Sandvík Bergi Þorgeir Ólafsson
Tangó Litla-Garði Konráð Valur Sveinsson
Tign Hrafnagili Hans Þór Hilmarsson
Vigdís Eystri-Hól Ævar Örn Guðjónsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link