Tveggja helga frumtamninganámskeið
Dagana 21.-22. og 28.-29. Janúar mun Guðmundur M. Skúlason, tamningamaður og þjálfari FT, kenna frumtamningar í Grundarfirði.
„Á námskeiðinu kemur hver nemandi með eitt eða tvö trippi og vinnur með þau báðar helgarnar. Allir þátttakendur fá heimaverkefni til að vinna með á milli helganna. Það sem verður meðal annars farið yfir á námskeiðinu er:
- Atferli hestsins (Hvernig hugsar hesturinn?)
- Leiðtogahlutverk (hvað getur maður fengið hestinn til að gera?)
- Undirbúningur fyrir frumtamningu (Undirbúningur er grunnur að góðum hlutum)
- Frumtamning er grunnur að góðri tamningu á forsendum hestsins.
Tveir bóklegir tímar (sameiginlegir fyrir alla þátttakendur)
Átta verklegir tímar á hvern nemanda sem kemur með tvö trippi.
Fjórir verklegir tímar á hvern nemanda sem kemur með eitt trippi.
Samantekt í lok hvers dags þar sem farið er yfir verkefni dagsins og spurningum svarað.
Miðað er við að allir þátttakendur horfi á tímana hjá hinum og sjái mismunandi hestgerðir og hvernig þær bregðast við á mismunandi hátt. Þá geta allir fengið mikið út úr námskeiðinu.
Námskeiðið kostar
- Nemandi með eitt hross 15000
- Nemandi með tvö hross 25000
Síðasti skráningadagur 16. janúar. Skráning og nánari upplýsingar í síma: 7702025 (Guðmundur) eða á netfangið: [email protected].“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH