Kynbótasýningar Tveir með tíu fyrir brokk

  • 15. september 2022
  • Fréttir

Hákon frá Vatnsleysu hlaut 10,0 fyrir brokk, sýnandi Þórarinn Eymundsson. Mynd: Skjáskot af Alendis.is

Nú þegar kynbótasýningum árið 2022 er lokið þá er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er brokk.

Tveir hestar hlutu 10 fyrir brokk, Sindri frá Hjarðartúni og Hákon frá Vatnsleysu.

Hákon hlaut 10 fyrir brokk á síðsumarssýningu á Hólum, sýndur af Þórarni Eymundssyni. Hákon er átta vetra undan Lord frá Vatnsleysu og Hrund frá Vatnsleysu. Eigandi og ræktandi er Björn Friðrik Jónsson

Sindri hlaut 10 fyrir brokk á Landsmótinu á Hellu, sýndur af Hans Þór Hilmarssyni. Sindri er sjö vetra undan Stála frá Kjarri og Dögun frá Hjarðartúni. Ræktandi er Óskar Eyjólfsson en eigendur eru þau Bjarni Elvar Pétursson og Kristín Heimisdóttir.

Þrettán hross hlutu 9,5 fyrir brokk á árinu. Athygli vekur að öll þessi hross voru sýnd á Íslandi.

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir brokk.

Nafn Uppruni Sýnandi
Amadeus Þjóðólfshaga 1 Sigurður Sigurðarson
Börkur Fákshólum Eyrún Ýr Pálsdóttir
Hersir Húsavík Teitur Árnason
Hreyfing Akureyri Þórarinn Eymundsson
Hringsjá Enni Teitur Árnason
Kamma Sauðárkróki Þórarinn Eymundsson
Kveikja Hemlu II Vignir Siggeirsson
Lýdía Eystri-Hól Árni Björn Pálsson
Rjúpa Þjórsárbakka Teitur Árnason
Sigð Oddsstöðum I Árni Björn Pálsson
Sindri Hjarðartúni Hans Þór Hilmarsson
Staka Hólum Mette Camilla Moe Mannseth
Viðar Skör Helga Una Björnsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar