Tveir tíur í skeiði hjá stóðhestum í elsta flokki
Tveir stóðhestar í elsta flokki fengu 10 fyrir skeið í fordómi á LM2012, Trymbill frá Ási, sem er í öðru sæti í flokknum með 8,54 í aðaleinkunn, og Flugnir frá Ketilsstöðum, sem er með 8,34 í aðaleinkunn.
Trymbill er undan Þokka frá Kýrholti og Nótu frá Stóra-Ási, Oddsdóttur frá Selfossi, Kjarvalssonar frá Sauðárkróki. Hann er með 8,97 fyrir kosti, 9,0 fyrir tölt og fegurð og 9,5 fyrir vilja og geðslag. Ræktandi er Lára Kristín Gísladóttir en eigandi Mette Mannseth. Knapi Gísli Gíslaon.
Flugnir er undan Andvara frá Ey og Framkvæmd frá Ketilsstöðum, Hrafnsdóttur frá Holtsmúla og Hugmyndar frá Ketilsstöðum. Hann hlaut 10 fyrir skeið í forskoðun í vor og endurtekur leikinn núna. Greinilega mikill náttúruvekringur þar á ferð. Með 9,5 fyrir vilja og geðslag eins og Trymbill. Ræktandi, eigandi og knapi Bergur Jónsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH