Norðurlandamót Tvö gull til Svíþjóðar og eitt til Danmerkur í 100 metra skeiði

  • 8. ágúst 2026
  • Fréttir

Vera Elgholm. Ljósmynd: Cassandra Laikmets

Íslensku knaparnir náðu ágætis tímum

Keppni í 100 metra skeiði lauk nú rétt í þessu. Íslendingum tókst ekki að næla sér í sigur í neinum flokki en íslensku knaparnir náðu þó góðum tímum. Hægt er að horfa á Norðurlandamótið í beinni á EiðfaxaTV. Þá er einnig hægt að fylgjast með dagskrá mótsins, ráslistum, niðurstöðum og fleiru á snjallforriti HorseDay.

Í fullorðinsflokki sýndi Nathalie Fischer á Ímni fra Egeskov yfirburi sína og nældi sér í gull á tímanum 7,52 sekúndum. Landa hennar frá Danmörku, Tania Højvang Jensen, á Glúmi frá Þóroddsstöðum varð önnur á tímanum 7,61 og Guðmundur Einarsson á Draumi från Tängmark urðu í þriðja sæti á 7,68 sekúndum. Íslensku knaparnir í þessum flokki voru þeir Sigurður Narfi Birgisson á Randver frá Þóroddsstöðum og Kristján Árni Birgisson á Kröflu frá Syðri-Rauðalæk og urðu þeir í fimma og sjötta sæti.

Í ungmennaflokki var það Olivia Agerhill frá Svíþjóð sem sigraði keppinauta sína á hryssunni Júlíu från Agersta á tímanum 7,76 sekúndur. Dagur Sigurðarson á Galbjarti frá Hóli varð fjórði á 812 sekúndum.

Í unglingaflokki fór gullið einnig til Svíþjóðar því þar fór hraðast Vera Elgholm á Dreka från Lind á tímanum 8,43. Viktor Arnbo á Ársólu från Stensäter keppti fyrir hönd Íslands og náði sér í brons á tímanum 9,70 sekúndur.

Flugskeið 100m P2
Fullorðinsflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Natalie Fischer Ímnir fra Egeskov 7,52
2 Tania Højvang Jensen Glúmur frá Þóroddsstöðum 7,61
3 Gudmundur Einarsson Draumur från Tängmark 7,68
4 Daníel Ingi Smárason Sif från Lindhof 7,73
5 Sigurður Narfi Birgisson Randver frá Þóroddsstöðum 7,80
6 Kristján Árni Birgisson Krafla frá Syðri-Rauðalæk 7,96
7 Wictoria Gren Kjarval fra Søtofte 8,08
8 Liv Runa Sigtryggsdottir Baltasar frá Strandarhjáleigu 8,23
9 Maren Øyo Abel fra Røysland 8,63
Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Olivia Agerhill Júlía från Agersta 7,76
2 Johanna Kirstine Nielsen Maja fra Skindbjerg 7,89
3 Rebecca Hesselbjerg Taulborg Tindra fra Kirstineholm 8,05
4 Dagur Sigurðarson Galbjartur frá Hóli 8,12
5 Sara Gardarsdottir Hesselman Herkúles från Knubbo 8,37
6 Vilma Marie Ostergaard Glæsir fra Rist 8,44
7 Kanerva Niemi Sinfónia fra Kaakkola 8,63
8 Hermine Oline Gude-Karlsen Silfri frá Mið-Fossum 9,26
9 Filippa Gram Kristall frá Skagaströnd 9,28
10 Maren Brandsgård Skaug Aþena fra Skogly 9,44
11 Vilma Mätäsniemi Hvammur frá Hvolsvelli 9,57
Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Vera Elgholm Dreki från Lind 8,43
2 Tilda Brandes Jara frá Horni I 9,19
3 Viktor Arnbro Ársól från Stensäter 9,70
4 Freja Hesselbjerg Tóra fra Almindingen 9,82
5 Molly Öberg Lótus från Ödegården 9,83
6 Julie Forberg Taktík fra Teland 10,61
7 Majken Roström Arfur frá Steinskoti 1 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link