U-21 árs landslið Íslands í bígerð

  • 17. október 2022
  • Fréttir

Landsliðshópur yngri flokka á Norðurlandamótinu síðastliðið sumar.

Nýr landsliðshópur yngri flokka kynntur í nóvember

Nú er undirbúningsvinna fyrir komandi tímabil hjá U-21 árs landsliðshópnum komin á fullan skrið. Á næsta ári er verkefni landsliðsins heimsmeistaramót íslenska hestsins í Hollandi.

„Þangað ætlum við með okkar allra sterkustu keppnispör frá Íslandi og einungis fimm ungmenni verða valin til keppni þar. Með þetta stóra verkefni í huga mun áhersla landsliðsþjálfara á árinu 2023 vera sú að einungis sterkustu pörin (knapi og hestur) sem bjóðast hverju sinni verða í landsliðshópnum. Einnig skal landsliðsþjálfari hafa í huga sem mesta breidd í liðinu (sterkustu fimmgangspörin, sterkustu fjórgangspörin og sterkustu pörin í skeiðgreinum). Fyrir liggur að landsliðþjálfari mun fækka í landsliðshópnum frá síðasta ári með ofangreint markmið í huga. Stærð fyrsta úrtaks í landsliðshóp er á bilinu 10-12 knapar,“ segir í tilkynningu frá Landsambandi hestamannafélaganna.

„Rétt er að taka fram að knapar sem ekki eru valdir að þessu sinni eiga jafn mikinn möguleika og allir aðrir til þess að sanna sig á undirbúningstímabilinu sem og á komandi keppnistímabili til þess að ávinna sér sæti í landsliðshópnum og mun landsliðsþjálfari fylgjast grannt með stöðu mála og bæta knöpum í hópinn eftir því sem þurfa þykir,“ segir í tilkynningunni

Nýr landsliðshópur (fyrsta úrtak) fyrir árið 2023 verður kynntur nú í nóvember og mun vetrarstarfið hjá hópnum fara af stað strax í desember. Dagskráin er nokkuð þétt alveg fram á vor og sumar þegar endanlegur hópur fyrir HM verður kynntur.

„Þjálfun, mælingar og ýmsir hittingar eru skipulagðir yfir tímabilið, og knapar liðsins þurfa svo sannarlega að hafa fyrir sínum sætum í hópnum. Það er stórt ár framundan og mikill hugur í þeim sem að landsliðsstarfinu koma í þeim verkefnum sem framundan eru,“ segir í tilkynningunni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link