Uggur vegna lágmarka og reglugerða um Íslandsmótið
Nokkur uggur hefur verið í knöpum norðan heiða vegna skráninga á Íslandsmót. Samkvæmt lögum og reglum LH, sem samþykktar voru árið 2008, hafa aðeins þeir sem náð hafa tiltekinni lágmarkseinkunn á löglegum íþróttamótum rétt til þátttöku á mótinu.
Hins vegar telja knapar sem Eiðfaxi náði tali af norðan heiða að skortur sé á löglegum íþróttamótum á Norðurlandi í vor. Hafi því margir knapar, sem eygðu von um að keppa á Íslandsmóti, ekki heimangengt á mót til að sækja sér löglegar lágmarkseinkunnir. Vakna því spurningar um hvort ekki þurfi að setja kröfur um fjölda og útbreiðslu slíkra móta til að hægt sé að gera fyrrnefndar kröfur um einkunnarlágmörk. Augljóst er á mótaskrá LH að knapar norðan heiða hafi mun færri tækifæri til að sækja sín lágmörk en fyrir sunnan. Í maí voru fimm slík mót haldin á Dalvík, Akureyri og í Skagafirði.
Vekur það ennfremur furðu knapa sem Eiðfaxi náði tali af, að hafa heyrt að kröfurnar væru takmarkaðar við árið í ár. Þykir knapanum það skjóta skökku við að hross sem náðu afar langt á Íslandsmóti síðasta árs hafi ekki þátttökurétt á Íslandsmóti í ár vegna þessarra takmarkanna. Í 5.2 reglugerð LH um Íslandsmót frá 2011 segir hins vegar: „Árangur frá árinu áður telst fullgildur.“ Því er um misskilning að ræða.
Keppnisnefnd LH gaf út einkunnarlágmörk í mars sl. og voru þau auglýst á heimasíðu LH en vekur það athygli að í auglýsingum sem berast frá mótshöldurum um Íslandsmót 2011 er lágmarkanna ekki getið en þau eru sem hér segir:
Tölt T1 6,0
Fjórgangur V1 5,7
Fimmgangur F1 5,5
Tölt T2 5,7
Gæðingaskeið PP1 6,0
Fimi 5,5
250 m skeið 26 sekúndur
150 m skeið 17 sekúndur
100 m skeið 9 sekúndur
Skráningu á Íslandsmót lauk í gærkvöldi en ekki liggur fyrir fjöldi þátttakenda á mótinu sem verður haldið að Brávöllum á Selfossi 13.-16. júlí nk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH