Landsamband hestamanna Um 700 gestir á Æskan og hesturinn og frumkvöðlar heiðraðir

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Sýningin Æskan og hesturinn var haldin nýverið í nýrri og glæsilegri reiðhöll Sörla í Hafnarfirði, en um þrjátíu ár eru liðin frá því sýningin var haldin fyrst.

Þar komu fram efnilegustu hestamenn landsins og sýndu afrakstur vetrarstarfsins fyrir þéttsetinni höll en um 700 gestir lögðu leið sína í Sörla. Það voru ungir hestamenn frá öllum hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu; Fáki, Herði, Mána, Spretti, Sóta og Sörla sem sýndu fjölbreytt og skemmtileg atriði sem þeir hafa æft í hverju félagi fyrir sig. Hestakrakkar frá Þyt og Geysi komu einnig í heimsókn. Mikill metnaður var lagður í atriðin og sýningin heppnaðist frábærlega að sögn Hilmars Guðmannssonar sýningarstjóra. Það var Sigurbjörn Bárðarson, tamningameistari sem setti sýninguna. Íshestar buðu svo gestum að fara á hestbak sem mæltist vel fyrir.

Elín Magnúsdóttir frá hestamannafélaginu Sörla og Sigrún Sigurðardóttir frá hestamannafélögunum Fáki og Spretti voru heiðraðar fyrir frumkvæði, elju og óeigingjarnt starf í þágu æskunnar og íslenska hestsins en þær eru meðal upphafskvenna sýningarinnar og voru í öflugum hópi sjálfboðaliða sem kom þessari skemmtilegu sýningu á laggirnar og stuðluðu þannig að mikilvægri nýliðun í hestamennsku með framlagi sínu.

Það var Sigurbjörn Bárðarson, tamningameistari sem setti sýninguna. Ljósmynd: Gígja Einarsdóttir.

Ljósmynd: Gígja Einarsdóttir.

Ljósmynd: Gígja Einarsdóttir.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link