Um hvað snúast kosningar stjórnar LH
„Kæru félagar, hestamenn nær og fjær
Nú standa fyrir dyrum kosningar til formanns og stjórnar Landssambands hestamannafélaga.
Frá því að þingi LH var frestað, í lok október, hafa hestamenn brotið heilann um hugsanlega frambjóðendur til formanns, stjórnar og varastjórnar. Þegar þetta er skrifað liggja fyrir 3 framboð í stjórn, 10 í aðalstjórn og 5 í varastjórn. Framboðsfresti er þó ekki lokið og því kannski ekki allir búnir að tilkynna framboð sín. Allt frambærilegt fólk, alls staðar að af landinu sem samanlagt hefur mikla reynslu, hvert á sínu sviði.
Hestamenn virðast vera að skiptast í fylkingar og aðallega virðast þær fylkingar snúast um það hvar eigi að halda Landsmót. Menn róa hver sinni ár og í sitt hvora áttina og því miður virðist sundrung sú sem vart varð á þinginu alls ekki á undanhaldi.
Þess vegna langar mig að vekja athygli þingfulltrúa á að Landssambandið snýst einungis að hluta um Landsmót. Þegar við kjósum stjórn þurfum við að huga að öllum hinum málunum sem LH stendur fyrir, æskulýðsmálum, reiðvegamálum, keppni í hestaíþróttum, gæðingakeppni, erlendu samstarfi, fræðslumálum ýmiss konar, nýliðun í hestamennsku og svo mætti áfram telja.
Síðasta þingi lauk á dramatískan og fyrir samtökin, sorglega hátt. Leggjumst á eitt að ljúka komandi þingi í sátt og horfa fram á veginn, ekki í baksýnisspegilinn. Hugsum um stóra samhengið og kjósum í samræmi við það, látum hreppapólitík og baktjaldamakk ekki villa okkur sýn og hugsum um velferð og framtíð Landssambands hestamannafélaga.
Ég vill í því samhengi skora á nýja stjórn LH að halda Uppskeruhátíð samtakanna sem allra fyrst, hestamenn þurfa á því að halda að koma saman og skemmta sér og fagna afrekum liðins árs.“
Gleðilegt LH þing
Kveðjur
Hulda Gústafsdóttir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH