Umdeild regla
Landsþingi hestamanna fer að ljúka en kosning í stjórn LH fer fram nú í augnablikinu. Þingið hefur gengið vel og hafa tillögur verið afgreiddar hratt og örugglega. Ein tillaga skapaði þó mikla umræðu en það er tillaga nr 2 en hún er svo hljóðandi:
Tillaga
60. Landsþing hestamannafélaga haldið í Stykkishólmi, dagana 14. og 15. okt. 2016 samþykkir að fella út setningu í reglu 4.2 um styrkleikaskiptingu opins flokks sem hljóðar svo „Keppandi má einungis keppa í einum flokki, þ.e. 2. flokki, 1. flokki eða meistaraflokki á sama móti. „
Greinargerð
Knapar hafa stundum marga hesta undir höndum, bæði vana keppnishesta og svo aðra sem eru að byrja sinn keppnisferil. Ekki er sanngjarnt að þessir hestar keppi í sama styrkleikaflokki.
Sigurður Ævarsson og Sigurbjörn Bárðason töluðu mikið með reglunni en þeir töldu það vera skref aftur á bak og ekki veit áhugamönnum nógu mikil tækifæri.
Hulda Gústafsdóttir lagði til að tillagan yrði samtykkt og bætti við að reglan hefði verið mjög umdeild síðustu ár. Hrefna María var sammála kynsystur sinni en taldi þessa reglu hafa virkað mjög hamlandi.
Það fór svo að tillagan var felld með 64 atkvæðum gegn 56
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH