Umsókn í Framhaldskólanefnd hestaíþrótta
Hestaíþróttamót framhaldsskólanna er haldið á hverjum vetri. Undirbúningur fyrir næsta mót er að hefjast.
Umsóknir um þátttöku í framhaldskólanefnd hestaíþrótta hefur hér með hafist. Framhaldsskólanefndin samanstendur af hestafólki sem stunda nám við framhaldsskóla og skipuleggur saman hið árlega framhaldsskólamót í hestaíþróttum þar sem skólar víðsvegar um landið mæta og taka þátt.
Störf nefndarinnar eru fjölbreytt, áhugaverð og skemmtileg. Við auglýsum eftir fólki sem hefur áhuga á að starfa í nefndinni með okkur í vetur. Í umsókninni þurfa að koma fram helstu upplýsingar um ykkur, fullt nafn, aldur, símanúmer, í hvaða skóla þið eruð og afhverju þið hafið áhuga á að starfa í nefndinni.
Umsóknir þurfa að berast inn fyrir þann 31. október næstkomandi á [email protected]. Ef það vakna einhverjar spurningar getið þið haft samband í síma 847-1279 eða sent e-mail.
Ekki vera feimin! F.h. Framhaldsskólanefndarinnar í hestaíþróttum Rósa Kristinsdóttir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH