Undanfari á Feti
Magnús Halldórsson, hagyrðingur á Hvolsvelli.
Fyrir skömmu var kynntur til sögunnar á vef Eiðfaxa reiðmaður nokkur, sem hefur verið tekinn í gagnið á hrossabúinu Feti, ef svo má segja. Alla vega er nokkuð víst að hann, eða hún, sækir ekki um vinnu eða hafnar henni. Um er ræða nokkurs konar tuskubrúðu í mannsstærð, sem notuð er til að „fara á bak“ trippum í fyrstu skiptin. Hefur knapi þess fengið nafnið Undanfari. Magnús Halldórsson á Hvolsvelli sendi Hestablaðinu eftirfarandi vísur skömmu eftir að Undanfari var kynntur til sögunnar.
Fram úr öðrum Fet-menn skara,
í fréttum þetta var að sjá.
Þeir eiga nýjan undanfara,
sem öllu kviku ríða má.
Víst mun þetta verða raunin,
vaskur kappinn ríður greitt.
Hans þarf ekki að hækka launin
og hann þarf ekki að éta neitt.
Ekki gáfum skírum skartar,
skilur ´ann bara þetta fag.
Um eistnaverki aldrei kvartar,
alveg laus við reiðarslag.
Latir þennan léttast skilja,
losna menn við basl og tjón.
Og eldri reiðmenn eflaust vilja,
eiga slíkan kosta þjón.
Þó lifa megi hann við hlekki,
hnakkinn ávallt tengdur við
Þá feministar fárast ekki,
fullgreint ei mun kvikindið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH