Undir hvern fóru þær?
Nú eru margir hverjir að sækja hryssur frá stóðhestum og eru margir spenntir að sjá folöldin sín sem fæðast á næsta ári. Eiðfaxi fór á stúfana og athugaði hvað hryssur fóru undir hvern svo hérna koma nokkrar topp hryssur sem hafa verið áberandi á brautinni eða í ræktun á síðustu árum.
Álfadís frá Selfossi hefur stimplað sig inn sem ein fremsta ræktunarmeri landsins. Hún gefur hvern gæðinginn á eftir öðrum og á nú orðið átta fyrstu verðlauna afkvæmi. Álfadís fór undir gæðinginn Arion frá Eystra-Fróðholti en Arion þarf vart að kynna hann var hæst dæmdi stóðhesturinn í ár og sigraði 7 vetra og eldri flokkinn á Landsmótinu. Hann hlaut í ár m.a. 10 fyrir hægt tölt og 10 fyrir tölt. Afkvæmi Álfadísar og Arions verður með 126,5 í BLUP í aðaleinkunn samkvæmt valpörun WorldFengs. Það skorar hæðst í hægu tölti (120), tölti (122), vilja (125) og fegurð í reið (127). Ætli afkvæmið smelli í eina 10 eins og systir hennar Álfhildur ?
Tölthryssan magnaða Díva frá Álfhólum fór undir landsmótssigurvegarann í A flokki Óm frá Kvistum. Þetta verður fjórða afkvæmi Dívu en fyrir á hún þrjú undan Pan frá Breiðsstöðum, Þrumufleyg frá Álfhólum og Kjerúlf frá Kollaleiru. Samkvæmt valpörun WorldFengs verður afkvæmið með 121,5 í BLUP. 50% líkur eru á alhliða afkvæmi en það skorar hæðst í tölti (122), fegurð í reið (124) og vilja (125,5).
Tvöfaldi Landsmótssigurvegarinn Kolka frá Hákoti var haldið undir Ölni frá Akranesi en Ölnir sló heldur betur í gegn í ár með jafnar og góðar gangtegundir og gott geðslag. Þetta verður annað afkvæmi Kolku en hún á fyrir tveggja vetra fola undan Þrumufleyg frá Álfhólum. Samkvæmt valpörun WorldFengs mun það vera með 123,5 í BLUP. Líkur á alhliða afkvæmi eru 100%. Hæðst fengi það fyrir tölt (120), fegurð í reið (120) og vilja (125,5).
Lukka frá Stóra-Vatnsskarði fór undir Landsmótssigurvegarann í A flokki í ár Spuna frá Vesturkoti. Fyrstu afkvæmi Lukku kom til dóms í vor, 5.vetra Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði (8.43) og 4.vetra Sara frá Stóra-Vatnsskarði (8.03). Fyrsta afkvæmi Spuna kom einnig til dóms í vor, Glaumur frá Geirmundarstöðum, hann hlaut 8.28 í aðaleinkunn. Valpörun WorldFengs gefur til kynna að afkvæmið verði með 122,5 í kynbótamati og að 100% líkur séu á alhliða afkvæmi.
Ákveðið var að leiða sigurvegarana í fjagra vetra flokkunum saman, Hamingju frá Hellubæ og Konsert frá Hofi. Enda kannski við hæfi en bæði slógu þau heimsmet á Landsmótinu. Það verður gaman að sjá hvað verður undan þessum tveimur heimsmetshöfum. Afkvæmi Hamingju og Konsert yrði með 118,5 í BLUP samkvæmt valpörun WF og 87,5% líkur eru á því að það verði alhliða.