Suðurlandsdeildin Undirbúningur hafinn fyrir Suðurlandsdeildina

  • 5. október 2021
  • Fréttir
Opið fyrir umsóknir liða

Undirbúningur er hafinn fyrir sjötta keppnisárið í Suðurlandsdeildinni! Frábær stemning hefur verið í deildinni síðustu ár og gríðarleg tilhlökkun fyrir framhaldinu komandi tímabili.

Nú er tækifæri til þess að setja saman lið og vera með á komandi keppnistímabili í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum í Rangárhöllinni á Hellu! A.m.k. tvö sæti eru laus í deildinni þar sem tvö neðstu liðin féllu út eftir tímabilið.

Þau lið sem eiga þátttökurétt í deildinni þurfa að staðfesta fyrir 20. október hvort þau muni halda áfram.

Þau lið sem eiga þátttökurétt eru:

Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún
Byko
Efsta-Sel
Fet/Þverholt
Hekluhnakkar
Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð
Húsasmiðjan
Krappi
Kvistir
Smiðjan Brugghús
Toltrider
Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær

Laust er fyrir a.m.k. tvö lið í deildinni 2022. Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 31. október. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn 3 áhugamanna og 2-3 atvinnumanna. Dregið verður úr umsóknum sé umfram eftirspurn.

Þau lið sem féllu úr deildinni 2021 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um.

Liðin verða áfram skipuð 2-3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Á hverju kvöldi keppa 2 áhugamenn og 2 atvinnumenn, nema á lokakvöldinu – þá geta allir keppt. Áhugamaður má keppa sem atvinnumaður en atvinnumaður má ekki keppa sem áhugamaður. Áfram verður Suðurlandsdeildin einungis liðakeppni en þrjú stigahæstu liðin verða verðlaunuð.

Atvinnumaður: Allir ásamt ungmennum.

Áhugamaður: Er að lágmarki 22 ára á árinu og má ekki hafa keppt í meistaraflokk síðustu 2 ár.

Stjórn Suðurlandsdeildarinnar hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylli inngangsskilyrði.

Umsóknarfrestur er til 31. október.

Þátttökugjald er 140.000 kr.

Allar spurningar sem og umsóknir vegna Suðurlandsdeildar skulu sendar á [email protected].

Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Suðurlandsdeildina 2022.

Sjáumst í Rangárhöllinni í vetur!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link