Ungfolasýning í Ölfushöll
Hin árlega ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands fer fram í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli á laugardaginn kemur 7. apríl. Á þriðja tug glæsilegra fola er skráður til leiks eigendur mæta með fola sína í sköpulagsmat sem hefst kl. 13. Ölfushöllinn opnar kl 15:oo aðgangur er ókeypis og sýning á folunum hefst kl 15:30 .
Folarnir sem taka þátt í ár eru stórættaðir, m.a. undan hestum eins og Kráki frá Blesastöðum, Álfi frá Selfossi, Þristi frá Feti, Stála frá Kjarri, Kvisti frá Skagaströnd, Vilmundi frá Feti, Hróðri frá Refsstöðum og Kiljan frá Steinnesi svo einhverjir séu nefndir. Einnig má nefna að mæður sumra þeirra eru ekkert slor, en margir muna eftir hryssum eins og Eldingu frá Haukholtum, Hendingu frá Úlfsstöðum, Hraundísi frá Lækjarbotnum og Lukku frá Búlandi sem eru á meðal margra góðra sem þarna eiga afkvæmi.
Ungfolasýningarnar hafa ávallt notið vinsælda og gefa hrossaræktendum gott tækifæri til að skyggnast inn í framtíðina og oftar en ekki hafa efstu folarnir á þessari sýningu orðið feikna góðir og endað í háum tölum þegar í brautina er komið. Í ár munu sumir sigurvegarar yngri flokka frá því í fyrra freista gæfunnar og snúa aftur, s.s. hinn mjög svo athyglisverði Lukku-Láki, Lukku- og Álfssonur, frá Stóra-Vatnsskarði.
Tilvalið að taka sér bíltúr í Ölfusið eða renna þaðan úr sumarbústöðum á Suðurlandi ef menn eru í páskafríi í sunnlenskum sveitum. Um kvöldið fer svo fram Stóðhestaveisla á sama stað og því er líka hægt að gera góðan hrossaræktardag úr öllu saman, mæta á ungfolasýningu, fá sér snæðing og koma svo á stóðhestaveisluna um kvöldið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH