Ungfolasýning í Ölfushöllinni 9. apríl 2011



  • 4. apríl 2011
  • Fréttir

Fullgildir dómarar munu sjá um að dæma sköpulag ungfolanna.

Fullgildir dómarar sjá um sköpulagsmat

Árleg ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður laugardaginn 9. apríl 2011 í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli, og að þessu sinni í tengslum við Stóðhestaveislu Hrossaræktar.is. Fyrirkomulag ungfolasýningarinnar verður að öðru leyti með svipuðu sniði og í fyrra. Starfandi kynbótadómarar munu taka út folana bæði fyrir sköpulag og hreyfingu.

Rétt til þátttöku eiga folar fæddir árið 2008 og 2009. Sköpulagsmat hefst kl. 9:30 en sýningin kl. 11:30. Dómarar raða efstu fimm folunum í hvorum flokki. Áhorfendur velja síðan álitlegasta folann í hverjum flokki. 
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 6. apríl. Skráningargjald er 3.000 kr fyrir félagsmenn en 3.500 kr fyrir aðra.

Innifalið í skráningu eru tveir miðar á ungfolasýninguna.  Miðaverð á ungfolasýninguna er 1.000 kr. Miðaverð fyrir allan daginn í Ölfushöllinni þ.e. ungfolasýninguna og Stóðhestaveisluna um kvöldið er 3.500 kr. með þeim miða fylgir stóðhestablað Hrossaræktar.is. Skráning í síma 899-8180 eða á netfangið [email protected].

Félagsmenn og aðrir áhugamenn um hrossarækt eru hvattir til að mæta.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link